fbpx
Föstudagur 23.janúar 2026
Fréttir

Lögreglan í Utah telur sig spara tíma með gervigreind – Skýrsla sagði lögreglumann hafa breyst í frosk

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 10. janúar 2026 14:30

Lögreglumaðurinn breyttist ekki í frosk.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglumenn í Utah notuðu gervigreind til þess að skrifa lögregluskýrslu af atviki með stórundarlegum afleiðingum. Í skýrslunni stóð að einn þeirra hefði breyst í frosk.

Fréttastofan UPI greinir frá þessu.

Lögreglumenn í bænum Heber City byrjuðu í síðasta mánuði að nota tvö gervigreindarforrit í störfum sínum. Það er Draft One og Code Four til þess að skrifa upp lögregluskýrslur. Eru skýrslurnar byggðar á efni sem kemur úr búkmyndavélum lögreglumanna.

Í einni skýrslunni stóð að lögreglumaður hefði breyst í frosk. Sem gerðist ekki í raun og veru.

„Hugbúnaðurinn í búkmyndavélinni og gervigreindin sáu bíómyndina sem var í gangi í sjónvarpi í bakgrunninum. Það var myndin „Prinsessan og froskurinn,““ sagði varðstjórinn Rick Keel í sjónvarpsviðtali við Fox News. „Það var þá sem við áttuðum okkur á að við þyrftum að leiðrétta þessar gervigreindarskýrslur.“

Sagði hann að deildin myndi ekki hætta að nota gervigreindina en taka henni með meiri fyrirvara og fara betur yfir skýrslurnar. Sagði hann að gervigreindin myndi spara sér 6 til 8 tíma vinnu í hverri viku.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir aldrei fleiri bílastæði í borginni – „Þessi umræða er mesta væl sögunnar….“

Segir aldrei fleiri bílastæði í borginni – „Þessi umræða er mesta væl sögunnar….“
Fréttir
Í gær

Fær bætur eftir örlagaríka ferð úr hádegisverði

Fær bætur eftir örlagaríka ferð úr hádegisverði
Fréttir
Í gær

Hættuleg líkamsárás í Grindavík

Hættuleg líkamsárás í Grindavík
Fréttir
Í gær

Íslendingar segja að ræða Carneys í gær verði skráð í sögubækurnar – „Við erum að taka skiltið úr glugganum“

Íslendingar segja að ræða Carneys í gær verði skráð í sögubækurnar – „Við erum að taka skiltið úr glugganum“