Fréttir

Allt tiltækt slökkvilið á vettvangi í Elliðaárdal

Mynd

Kviknað hefur í Toppstöðinni í Elliðaárdal og má sjá mikinn reyk stíga til himins.

Mbl.is greinir frá að allt tiltækt lið Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafi verið kallað til og að slökkvistarf sé hafið. Tveir sjúkrabílar eru á vettvangi og fjórir slökkviliðsbílar. 

Ekki liggur fyrir hvort einhver hafi slasast í brunanum.

Viðbragðsaðilar beina vegfarendum frá vettvangi, en búið er að loka svæðinu.

Upptök brunans eru með öllu óljós enn sem komið er.

Mynd
Mynd: KSJ/DV.
Mynd
Mynd: KSJ/DV.
Mynd
Mynd: KSJ/DV.

 

Mynd
Mynd frá vettvangi. Mynd: Aðsend.
Mynd: Aðsend.