Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið sendar langt út á haf, við endimörk landhelginnar, til þess að sækja veikan erlendan skipverja á þjónustuskipi.
RÚV greindi fyrst frá.
Eins og kemur fram þá hafði áhöfnin samband við Landhelgisgæsluna í gærkvöld vegna málsins. Þyrlurnar voru sendar af stað um hádegið í dag en málið þykir nokkuð flókið vegna fjarlægðarinnar.
Maðurinn hefur verið hífður um borð. Eru þær lagðar aftur af stað til lands og von er á þeim nú á fjórða tímanum.