Fréttir

Rafmagnslaust í hluta Mosfellsbæjar og Reykjavíkur

Mynd
Grafarholt og Úlfarsárdalur - Mynd: Reykjavíkurborg

Rafmagnslaust er í Úlfarsárdal í Grafarholti, Grafarvogi og Mosfellsbæ, að hluta eða öllu leyti. Frá þessu greinir RÚV en að sögn Veitna er unnið að viðgerð en rafmagnsleysið getur líka haft áhrif á afhendingu á heitu vatni, þá einkum uppi í hæðum. Er íbúum ráðlagt að fara varlega við notkun á heitu vatni eftir að rafmagn kemur aftur á.

Á vef Landsnets kemur eftirfarandi fram: 

„Spennir 2 í tengi­virkinu Korpu leysir út. Rafmagns­laust er á Grafarvogi, Grafarholti, Mosfellsbæ og nærum­hverfi.“

Veitur hafa nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að rafmagnsleysið  nái einnig til Kjalarness og að unnið sé að því að greina bilun. Vonast er til að rafmagn verði komið á sem fyrst. Truflunin getur haft áhrif á fjarskipti og afhendingu á heitu vatni í efri byggðum. 
 
Uppfært 21:20: Rafmagn er komið á aftur hjá hluta íbúa í Grafarvogi hið minnsta og ætti að koma hjá fleirum fljótlega. 

Fréttin hefur verið uppfærð