Birtur var rétt í þessu á vef dómstólanna úrskurður Landsréttar þar sem úrskurður Héraðsdóms Reykjaness um frávísun á ákæru á hendur Skúla Tómasi Gunnlaugssyni lækni fyrir manndráp er felldur úr gildi. Málinu virðist því ekki vera lokið en Landsréttur tekur ekki undir það með héraðsdómi að Skúla Tómasi hafi nú þegar verið refsað með starfsleyfissviptingu og því sé ekki hægt að halda sakamáli á hendur honum til streitu.
Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp með því að hafa árið 2019 að óþörfu sett konu á lífslokameðferð í starfi hans sem læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Konan lést í kjölfarið.
Einnig voru mál fimm annarra sjúklinga Skúla Tómasar sem létust til rannsóknar en þau voru felld niður.
Ákært var fyrir manndráp af ásetningi en til vara manndráp af gáleysi.
Héraðsdómur Reykjaness vísaði hins vegar málinu frá á þeim forsendum að með starfsleyfissviptingu hefði Skúla Tómasi þegar verið refsað fyrir hinn meinta glæp og það væri ekki heimilt, samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu, að refsa fólki tvisvar fyrir sama glæpinn. Skúla Tómas fékk síðan aftur starfsleyfi sem læknir en með takmörkunum þó.
Skilyrði
Úrskurður héraðsdóms var kærður til Landsréttar sem segir í sinni niðurstöðu að ákvæði mannréttindasáttmálans um tvöfalda refsingu sem vísað sé til geti átt við stjórnsýsluviðurlög að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og sé þá aðkoma dómstóla og ákæruvalds ekki áskilin. Viðkomandi mál þurfi í slíkum tilfellum að teljast sakamál.
Þegar horft sé til þess hvort að mál á stjórnsýslustigi, sem svipting embættis landlæknis á starfsleyfi læknis telst vera, teljist vera sakamál reyni á skilgreiningar og hvað teljist heyra undir að vera sakaður um refsivert athæfi.
Landsréttur segir ljóst að lagaákvæði um starfsleyfissviptingu lækna séu ekki hluti af almennum hegningarlögum eða sérstakri refsilöggjöf. Þær stofnanir sem fari með vald til rannsóknar sakamála eða ákværuvald komi því ekki á neinn hátt að slíkum málum. Slík mál snúi einnig að afmörkuðum hópi sem gerðar séu miklar kröfur til á grundvelli sérfræðikunnáttu þeirra sem þessum hópi tilheyri.
Yfirlýst markmið með ákvæðum laga um starfsleyfissviptingu lækna séu að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu en ekki refsa viðkomandi. Þá séu engin refsiákvæði í lögum sem snúi að heilbrigðisþjónustunni. Þótt þau atvik sem leiði til starfsleyfissviptingar kunni að vera refsiverð geti það ekki eitt og sér leitt til þeirrar niðurstöðu að líta beri svo á að um refsingu eða refsikennd viðurlög sé að ræða. Ákvörðun landlæknis hafi enda ekki byggt á að svo væri heldur á mati á því hvort forsvaranlegt væri að Skúli Tómas hefði lækningaleyfi.
Landsréttur segir að vissulega sé svipting starfsleyfis sem læknir þungbær fyrir þann sem verði fyrir því en það sé samt ekki hægt að líta svo á að slíkt feli í sér refsingu eða refsikennd viðurlög heldur hafi verið um agaviðurlög á grundvelli stjórnsýsluréttar að ræða.
Svipting Landlæknis á starfsleyfi Skúla hafi því ekki talist vera refsing og það mál teljist þar af leiðandi ekki sakamál í skilningi mannréttindasáttmála Evrópu.
Frávísun Héraðsdóms Reykjaness er því felld úr gildi og málinu virðist því ekki vera lokið.
Úrskurð Landsréttar er hægt að kynna sér nánar hér.
Fréttin hefur verið uppfærð