Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrum formaður Kennarasambandsins, segir það óboðlegt að krefjast afsökunarbeiðni frá grunnskólakennurum landsins vegna slælegs árangurs íslenskra nemenda í Pisa-könnunum, ef þeir kennarar ættu að biðjast afsökunar þá ættu stjórnsýslufræðingar að gera slíkt hið sama.
Líkt og fjallað var um í gær sagði Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur að grunnskólakennarar skulduðu þjóðinni afsökunarbeiðni fyrir að kenna nemendum minna og verr en aðrar þjóðir.
Sjá einnig: Haukur segir íslenska grunnskólakennara skulda þjóðinni afsökunarbeiðni
Afsökunarbeiðnir algengar í nágrannalöndunum
Greining Hauks var til umræðu á Skólaþróunarspjallinu á Facebook þar sem flestir fundu orðum hans allt til foráttu. Ragnar Þór, sem hefur verið lengi áberandi í umræðunni um menntamál, tók ummælin fyrir í færslu á Facebook:
„Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur heimtar að kennarar biðjist afsökunar opinberlega á því hve lítið íslensk börn kunna og geta. Eftir það sé hægt, fyrir víðsýnan borgara eins og hann, að styðja við bakið á þeim á opinberum vettvangi,“ segir Ragnar Þór. „Ef það er eitthvað svið á Íslandi sem stendur sig á alla mælikvarða hraksmánarlegar en skólakerfið þá er það opinber stjórnsýsla, stefnumörkun og aðgerðir stjórnvalda og eftirfylgni. Þjóðin hlýtur að gera þá kröfu á Hauk, og aðra stjórnsýslufræðinga, að þeir biðjist náðarsamlegast fyrirgefningar á því hve stjórnsýsla á landinu er í vondum málum.“
Haukur var fljótur að svara honum: „Það er bara farið í manninn - af hverju kunnið þið ekki að eiga samræður?“
Telur hann sjálfur að skrif sín séu málefnaleg og innlegg í faglegar samræður. „Opinberir aðilar sem verður eitthvað á eða mistekst ætlunarverk sitt biðjast afsökunar. Það er tiltölulega algengt í nágrannaríkjunum.“
Kennaraskortur og innleiðingar sem mistókust
Ragnar Þór segir að sem stjórnsýslufræðingur eigi hann að vita að í áratugi hafi verið pólitískt stefnuleysi í menntamálum og nefnir hann aðgerðir menntamálaráðherra fyrr á öldinni:
„Þorgerður Katrín [Gunnarsdóttir] lét skrifa námskrá (þessi með bókstafaeinkunnunum). Katrín [Jakobsdóttir] tók við og skrifaði sína eigin bæklinga (grunnþættir menntunar) sem áttu að vera linsur á námskrána. Illugi [Gunnarsson] tók við og skrifaði hvítbók og keyrði í gang þjóðarsáttmála um læsi. Engir tveir menntamálaráðherrar í röð fylgja eftir sömu stefnu. Menntastefna sem þingsályktun til 2030 varð að engu um leið og þáverandi ráðherra skipti um starf,“ segir hann.
„Nemendur hafa hvorki aðgang að námsefni né afþreyingarefni á íslensku. Þá er krónískur kennaraskortur. Tilflutningur til sveitarfélaga mistókst, innleiðing skóla án aðgreiningar mistókst og innleiðing námskrár mistókst. Úrræði fyrir börn í vanda eru í mýflugumynd og hér fylltist allt af börnum af erlendum uppruna án þess að stjórnvöld gripu til aðgerða. Allt er þetta á stjórnsýslustigi. Og nú er ráðherrann að setja met í slælegri stjórnsýslu og handahófskenndu rugli. Þú kynnir þér ekki gagnrýnina – heldur heimtar afsökunarbeiðni af fólkinu sem slítur sér út til að láta hlutina ganga. Það er óboðlegt – og það er ekki að fara í manninn að benda þér á það.“
Haukur telur þetta réttlætingar:
„Það er gott að hafa réttlætingar - það hafa nú flestir. En ef þú spyrð mig hver hefði átt að biðjast afsökunar fyrir hönd kennara þegar síðustu niðurstöður Pisa-prófa lágu fyrir þá væri fyrsta svar mitt: menntamálaráðherrann. Hann ber hina endanlegu ábyrgð á málaflokknum. En formaður stéttarfélagsins væri sennilega næsta svar.“