Myndband af erlendum ferðamanni sem fór út fyrir merkta gönguleið í Fjaðrárgljúfri hefur vakið töluverð viðbrögð á Reddit-síðunni VisitingIceland.
Sá sem birti myndbandið segist hafa reynt að ná athygli ferðamannsins og benda honum á að svæðið væri lokað til að vernda gróðurinn, en án árangurs. Ferðamaðurinn hafi einfaldlega hunsað ábendingarnar.
„Skiltin og girðingarnar eru þarna af ástæðu. Við sem gestir þurfum öll að virða reglurnar,“ skrifaði viðkomandi og benti á að slík hegðun gæti á endanum orðið til þess að viðkvæmum náttúrusvæðum yrði lokað fyrir ferðamönnum.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa og fjölmargir kölluðu eftir háum sektum fyrir þá sem fara út fyrir merktar leiðir. Sumir gengu jafnvel svo langt að leggja til að ferðamönnum sem ítrekað brytu reglur yrði meinað að koma aftur til landsins.
Einn Íslendingur í umræðunni sagðist hins vegar hafa fundið nokkuð sérstaka leið til að ná til ferðamanna sem láta sér reglurnar í léttu rúmi liggja: Hann talar einfaldlega íslensku við þá.
„Ég held í alvöru að það hjálpi mikið að vera heimamaður í svona aðstæðum,“ skrifaði hann.
Hann sagðist oft hafa séð erlenda ferðamenn reyna að kalla til fólks sem færi út fyrir merkt svæði án þess að það bæri árangur. Þegar hann kæmi sjálfur að og segði það sama á íslensku væri viðbragðið hins vegar allt annað.
„Þá koma þeir til baka í hvert einasta skipti. Það er synd að þetta þurfi að vera svona, en þetta virkar.“
Ummælin vöktu nokkra kátínu og annar ferðamaður sagðist þá þurfa að bæta einu atriði á verkefnalistann fyrir Íslandsferðina: að læra að segja „Vertu á göngustígnum!“ á íslensku.
Fleiri í umræðunni sögðust hafa orðið vitni að svipaðri hegðun hér á landi. Einn sagðist hafa séð fólk fara hættulega nærri nýju hrauni og annar lýsti því hvernig ferðamenn hefðu farið allt of nálægt selum við Ytri-Tungu þrátt fyrir skýr skilti. Þar hafi verið skýrt merki um að ferðamenn ættu að halda sig í minnst 100 metra fjarlægð frá selunum.
„Það voru um 30 ferðamenn sem virtu þetta ekki og sumir voru innan við fimm metra frá þeim. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Ég vildi að það væru fleiri verðir á svona stöðum til að koma í veg fyrir þetta,“ sagði viðkomandi.
Rauði þráðurinn í umræðunni var þó sá sami: Merktar leiðir og lokanir eru ekki settar upp að ástæðulausu og ferðamenn og aðrir eiga að virða þær.