Samúel Guðmundsson er víða hylltur á samfélagsmiðlum fyrir frammistöðu sína í umræðuþættinum Piers Morgan Uncencored sem var birtur í gær en þar mætti Samúel umdeilda rabbínanum Shmuley Boteach sem hefur ekki vandað Íslendingum kveðjurnar að undanförnu. Rökræðurnar hafa vakið gríðarlega athygli hér á landi og hafa allir helstu fjölmiðlar fjallað um þáttinn.
Tilefni rökræðnanna var myndband af samskiptum rabbínans og Samúels í miðbæ Akureyrar þar sem sá fyrrnefndi sakaði þann síðarnefnda um gyðingahatur. Umræðurnar voru harðar á köflum og stór orð látin falla en rabbíninn var afar ósáttur við hversu mjög Morgan tók undir með Samúel.
Samúel sagði í viðtali við RÚV í gær að hann væri sjálfur sáttur með frammistöðuna:
„Ég er bara venjulegur gaur sem mætir í vinnu og pælir einum of mikið í pólitík og rökræðum. Að fá að mæta fyrir framan heiminn og berjast fyrir því sem mér finnst vera rétt, og hlæja að andstæðingnum inn á milli, var algjör heiður,“ sagði hann. Það væri svo í höndum almennings að dæma hvernig honum hefði gengið. Miðað við opinber viðbrögð þá gekk honum framar vonum.
Samfélagsrýnirinn Karen Kjartansdóttir segir að þarna sé komin fram ein óvæntasta stjarna internetsins og vísar í virk athugasemdakerfi rabbínans þar sem netverjar af ýmsum þjóðernum hylla Samúel.
„Þessi ungi iðnaðarmaður frá Selfossi er einhver óvæntasta stjarna internetsins sem ég man eftir. Nú skellir hann sér bara í kappræður við rabbínann Shmuley Boteach í Piers Morgan Uncensored, einum stærsta viðtals- og umræðuþætti YouTube, eins og ekkert sé sjálfsagðara,“ segir Karen í færslu á Facebook.
„Þessi heilnæma, rólynda og fallega orka í kringum þennan pilt er eitthvað alveg sérstakt.“
Fálkaorðuna á @sxmuelgudmunds , strax pic.twitter.com/iKVRX59ea7
— Kolbrún Birna 🇵🇸 (@kolla_swag666) August 13, 2026
Runólfur nokkur segir: „Fálkaorðuna á þennan eðalmann sem fyrst takk kærlega.“ Rithöfundurinn og aktívistinn Sólborg Guðbrandsdóttir segir: „Svo aðdáunarvert!“ Athygli vekur að þeir sem hafa áður tekið til varna fyrir Ísrael í íslenskri samfélagsumræðu hafa ekki tjáð sig um þáttinn enn sem komið er, hafa þó nokkrir gagnrýnt Samúel fyrir að segja „fokk Ísrael“ úti á götu.
Ótrúlega vel gert pic.twitter.com/EPHfMlo7D6 — beggi dan (@beggidan) August 13, 2026
Þorvaldur nokkur gefur rabbínanum ekki háa einkunn:
„Við hljótum allavega að geta sameinast um það að rabbíninn Shmuley er geðveikt ógeð og Samúel Guðmundsson einhverskonar snillingur.“
Björn Birgisson, samfélagsrýnir frá Grindavík, segir að það sé varla horfandi á þáttinn:
„Rabbíninn er augljóslega í engu andlegu jafnvægi, ofboðslega uppáþrengjandi og hundleiðinlegur og ekki samræðuhæfur vegna ofstopa síns.“
Fjölmiðlamaðurinn Kristinn Hrafnsson beinir spjótum sínum einnig að Boteach:
„Öskurapinn og bullukollurinn Schmuley var algerlega rassskelltur í þætti Piers Morgan þar sem Samúel Guðmundsson sýndi fádæma yfirvegun og stillingu þrátt fyrir gjammið. Hann var landi sínu til sóma,“ segir hann í færslu á Facebook. „Þessi Schmuley fékk sína rabbína nafnbót hjá sama sérhólfi hassidic gyðingdóms (Lubavitch) og rekur menningarmiðstöðina við Hverfisgötu (nefnd í höfuðið á rússneskættaða ólígarkanum sem sætir refsiaðgerðum í Bretlandi). Síðan Schmuley byrjaði að gjamma um Samúel og Ísland á samfélagsmiðlum hef ég leitað eftir áliti á honum hjá vinum mínum sem eru gyðingar. Allir sverja hann af sér með fussi og sveii og telja hann gera gyðingum gríðarlegan óleik með þessum ofstopa.“
Hversu fucking mikill fáviti þarftu að vera til að Piers Morgan fari að taka hliðina gegn þér hahahahah þetta viðtal er rosalegt. Þessi Samúel er algjör King, svo sultuslakur að þessi Shmuley er að fara í geðrof. Einhver iðnaðamaður frá Selfossi.
— 💎 Donna 💎 (@naglalakk) August 13, 2026
Rabbíninn sjálfur hefur lýst yfir sigri í rökræðunum við Samúel, hefur hann birt níu myndbönd um þáttinn á síðustu klukkutímum þar sem hann fer ófögrum orðum um Samúel og Morgan.