Fréttir

Samúel hefur ekki undan að svara skilaboðum: „Ég vil ekki mála mig sem eitthvað fórnarlamb eins og er herkænska rabbínans“

Mynd

Samúel Guðmundsson segir að hann hafi ekki undan að svara skilaboðum eftir þáttinn við Piers Morgan, hann hafi séð hótanir og að kærasta hans hafi fengið skilaboð um að það ætti að finna hvar hún ætti heima, hann ætlar þó ekki að mála sig upp sem eitthvað fórnarlamb og að viðbrögðin við frammistöðu hans í umræðuþættinum hafi að langmestu verið jákvæð.

Líkt og fjallað var um í morgun hefur Samúel verið víða hylltur á samfélagsmiðlum fyrir frammistöðu sína í umræðuþættinum Piers Morgan Uncencored sem var birtur í gær en þar mætti Samúel umdeilda rabbínanum Shmuley Boteach sem hefur ekki vandað Íslendingum kveðjurnar að undanförnu.

Sjá einnig: Samúel hylltur eftir rökræðurnar við rabbínann:„Óvæntasta stjarna internetsins“

Samúel ræddi um frammistöðu sína í Bítinu á Bylgjunni í morgun, þar fer hann yfir aðdragandann:

„Við gistum eina nótt á Akureyri, fórum út að borða og svona. Þegar við erum að labba aftur á hótelið þá sé ég rabbínann og ég þekki hann. Ég hef mikinn áhuga á pólitík og heimsmálum og ég hef séð hann oft koma fyrir,“ segir Samúel.. „Ég vissi hvernig hann væri, hann er svona rétttrúnaðargyðingur og eins harður zíonisti og þeir gerast. Og ég var búinn að sjá íslenska frétt um að hann væri á landinu með syni sínum sem er í ísraelska hernum.“

Þá hafi hann gripið tækifærið og sagt Shmuley „fokk Ísrael“ eins og frægt er orðið. Hann undirbjó sig vel fyrir að mæta honum svo aftur hjá Morgun.

„Það fór hellingsvinna í það. Ég var skiljanlega á nálum og tók daginn í frí til að taka glósur og lesa mér til og svona.“

Átti hann von á að rabbíninn hefði verið meira undirbúinn en raun var vitni. „Hann er vanur heimssviðinu en ég er gómur á plani.“

Samúel fékk mikla hjálp við undirbúninginn:

„Ég við þakka eldri bróður mínum Halla sérstaklega, hann vann á fjölmiðlum og er stjórnmálafræðingum. Fólk allskonar frá. Kristinn Hrafnsson, einn af mínum fyrirmyndum, hann hafði samband við mig og ég fékk að tala við hann í símann í hálftíma, hann sagði mér alveg hvernig leikurinn virkaði og gaf mér frábæra punkta til að koma með í viðtalið.“

Markmiðið með að koma fram var að koma boðskapnum á framfæri:

„Íslendingar styðja ekki þjóðarmorð. Íslendingar vita hvað er rétt og hvað er rangt.“

Það hafi verið erfitt að ná til rabbínans í þættinum:

„Þá fer maður út í þá augljósu staðreynd að anti-zionismi er ekki það sama og gyðingahatur. Þú getur verið á móti stjórnarfari lands, landi sem hefur verið alþjóðlega kært af dómstóli götunnar og alvöru stríðsglæpadómstóli að sé að fremja stríðsglæpi og þjóðarmorð. Maður hlýtur að geta talað gegn því án þess að tala gegn hverjum einasta einstakling sem að býr þarna eða er þaðan.“

Samúel er nú að fá skilaboð allsstaðar að úr heiminum. „Það er ekki séns að ég nái að svara öllum í dag. Ég er í vinnunni,“ segir hann. „Ég er að gera mitt allra besta til að svara.“

Öll skilaboðin hafi þó ekki verið á jákvæðu nótunum:

„Síðasta sólarhringinn hef ég séð, aðallega frá Ísraelum, að ég skuli passa mig að fara ekki hér og þar, hvort sem það er Ísrael eða New York,“ segir hann.

„Þegar þetta var fyrst frægt þá fékk kærastan mín skilaboð frá Ísraela að hann ætlaði að finna hvar við ættum heima, finna fjölskyldu okkar og svona. Það útskýrir svona hvernig hóp við erum að glíma við.“

Samúel er þó ekkert fórnarlamb:

„Ég vil ekki mála mig sem eitthvað fórnarlamb eins og er herkænska rabbínans. 99% af skilaboðunum hafa verið jákvæð.“

Hér má hlusta á viðtalið við Samúel.