Fréttir

Sigmundur Davíð segir „bottana“ mætta aftur og birtir skjáskot – „Finnst þér þetta viðeigandi?“

Mynd

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir „bottana“ vera mætta aftur í íslenska stjórnmálaumræðu.

Hann birtir því til stuðnings fjölmörg skjáskot á Facebook af færslum lítt þekkts notanda á samfélagsmiðlinum X en uppátækið hefur vakið misjöfn viðbrögð.

„Jæja, bottarnir, eins og sólin, eru mættir aftur! Þið munið e.t.v. eftir þeim úr umfjöllun um Vélfag á Akureyri, þar sem þeir hötuðust mjög út í fyrirtækið og starfsmenn þess en studdu utanríkisráðherra eindregið í því að loka fyrirtækinu. Nú kynni ég til sögunnar „Asi Kris” sem lætur gang mála á Íslandi sig miklu varða,” segir Sigmundur og heldur áfram:

„Asi þessi vakti athygli mína þegar hann sá ástæðu til að setja út á kveðju til þeirra sem hefðu komið að undirbúningi almyrkvans á Íslandi.

Asi hefur ýmsar skoðanir og lýsir þeim misgáfulega. En hann er eindreginn stuðningsmaður þess að segja „já til að sjá”,” segir Sigmundur í færslu sinni.

Ef umræddum notanda er flett upp á X kemur í ljós að aðgangurinn hans var stofnaður í mars síðastliðnum og hann er með 14 fylgjendur á bak við sig.

Eins og fyrr segir vakti færsla Sigmundar misjöfn viðbrögð. Einn þeirra sem gagnrýndi forsætisráðherrann fyrrverandi er Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður.

„Finnst þér það viðeigandi að formaður stjórnmálaflokks dragi upp einhvern gaur, hvort sem hann er undir viðurnefni eða ekki, sem einhvers konar dæmi fyrir eitthvað?“

Hann bætir svo við í annarri athugasemd:

„Ef þetta er botti, hver veit nema þetta sé bara miðflokksbotti að búa til tilefnið til þess að búa til svona færslu. Ef ekki, þá er þetta samt bara einhver random lúði sem hefur ekkert málefnalegt að segja. Ef þetta væri einhver málsmetandi, þá væri alveg eðlilegt að vesenast yfir því hins vegar. En þetta hljómar bara eins og eitthvað woke væl hjá SDG.”

Fleiri tóku í svipaðan streng og benti einn á að það virðist vera orðin þægileg leið í umræðunni að kalla alla þá sem eru ósammála „botta“. „Þá þarf ekki lengur að svara rökum nóg er að gefa andstæðingnum stimpil og telja málið leyst,“ bætti viðkomandi við.

Færslu Sigmundar og öll skjáskotin sem hann birti má sjá hér að neðan.