Íslenskur karlmaður sem var handtekinn í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot gegn 16 ára stúlku er laus úr haldi. Maðurinn sem um ræðir, Högni Kjartan Þorkelsson, var handtekinn í desember síðastliðnum og úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Heimildin greinir frá því að þolandi hafi breytt framburði sínum og vonast lögmaður Högna til þess að málið gegn honum verði vísað frá á næstu dögum.
Í frétt Heimildarinnar er þess getið að þann 16. júlí síðastliðinn hafi dómari samþykkt að fella gæsluvarðhald Högna úr gildi vegna nýrra gagna sem komið hefðu fram.
Herma upplýsingar Heimildarinnar að þau snúi að breyttum framburði stúlkunnar og ágreiningur hafi aðeins snúist um greiðslu fyrir kynlífsþjónustu. Er jafnframt bent á að kynferðislegur lágmarksaldur í Kólumbíu sé 14 ár.