Fréttir

Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu – Fékk 16 ára dóm 2023

Mynd

Angjelin Sterkaj, sem árið 2023 var dæmdur í sextán ára fangelsi í Hæstarétti fyrir morð á Armando Beqirai í svokölluðu Rauðagerðismáli, hefur verið veitt reynslulausn og vísað úr landi.

Frá þessu greinir Vísir og staðfestir Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri málið í samtali við miðilinn. Rauðagerðismálið kom upp í febrúar 2021 en Armando var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt.

Angjelin, sem er frá Albaníu, sætir endurkomubanni til landsins.

Í frétt Vísis er bent á að brottvísun Angjelins byggi á nýlegri bráðabirgðalagabreytingu dómsmálaráðherra. Hún heimilar að veita erlendum föngum sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi reynslulausn þegar þriðjungur refsitímans er liðinn.

DV greindi frá því í maí í fyrra að Angjelin afplánaði dóm sinn á Kvíabryggju sem er opið fangelsi.

Sjá einnig: Angjelin er í opnu fangelsi og mun aðeins afplána helming dómsins