Fréttir

Alfreð segir Ísland ekki geta beðið eftir símtalinu: „Verkefnin eru þarna úti. Samkeppnislönd okkar eru þegar farin að sækja þau“

Mynd

Alfreð Ásberg framkvæmdastjóri Sambíóanna spyr hvað Ísland ætli að gera í þeirri hröðu þróun sem orðið hefur í kvikmyndagerð í heiminum. Segir Alfreð að áður hafi Hollywood verið miðpunkturinn þegar kom að kvikmyndagerð og ráðið ferðinni að mestu leyti. Staðan í dag sé allt önnur. Segir hann sífellt fleiri þjóðir átta sig á að kvikmyndagerð er ekki bara menning heldur stór atvinnugrein.

„Lönd keppast um verkefnin með endurgreiðslum, skattaívilnunum og öðrum hvötum. Þau bíða ekki eftir verkefnunum, þau sækja þau.“

Segir Alfreð að það sýni best breytta stöðu að Hollywood er farin að sporna við þróuninni. Segir hann að Kalifornía hafi meira en tvöfaldað árlega kvikmyndahvata sína, úr 330 í 750 milljónir dollara, til að halda verkefnum, störfum og fjárfestingu heima.

„Ef Hollywood telur sig þurfa að berjast fyrir verkefnunum, þá þurfum við svo sannarlega að gera það líka.“

Segir Alfreð mörg lönd bjóða upp á samkeppnishæf kjör og hvaða um endurgreiðslu. Nefnir hann að Frakkland, Bretland, Írland, Spánn, Ungverjaland og fleiri þjóðir bjóða framleiðendum samkeppnishæf kjör.

„Frakkland er gott dæmi. Þar er almennt boðið upp á 30% hvata fyrir alþjóðlega framleiðslu og allt að 40% þegar um umfangsmikla VFX-vinnu er að ræða. En Frakkar gera meira en að bjóða góð kjör. Þeir vinna markvisst að því að sækja verkefnin og kynna landið og þjónustuna sem þar er í boði.“

Alfreð segir kapphlaupið alþjóðlegt um verkefni, störf og fjárfestingu. Og Ísland hafa margt fram að færa í því kapphlaupi. 

„Við höfum einstakt landslag og mikla reynslu. En það sem ég heyri aftur og aftur er hvað íslenskt starfsfólk er gott, mikill metnaður, vinnusemi og vilji til að leysa hlutina. Þetta er gríðarlegur styrkur.“

Tekur The Odyssey sem dæmi um stórt verkefni sem skilar sér langt út fyrir kvikmyndageirann

Stórmynd Christopher Nolan er nú í sýningum hér á landi sem og víða um heim og segir Alfreð myndina vera gott hvað Ísland getur. Tökur fóru fram meðal annars í Reynisfjöru og við Hjörleifshöfða og segir Alfreð framleiðsluna hafa fengið mjög vel og um 900 manns komu að verkefninu á Íslandi. 

„Svo er það gríðarlega landkynningin sem fylgir kvikmynd af þessari stærðargráðu. 

Áhrifin ná langt út fyrir kvikmyndageirann. Fjármunir fara í laun, hótel, bílaleigur, veitingastaði, flutninga, verktaka og önnur íslensk fyrirtæki, og hluti skilar sér aftur til samfélagsins í sköttum og gjöldum.

Ísland býður 25% endurgreiðslu af gjaldgengum framleiðslukostnaði og hún getur farið upp í 35% hjá stærri verkefnum sem uppfylla ákveðin skilyrði.“

 

Segir að horfa þurfi á heildarmyndina 

Alfreð segir því að ekki eigi að horfa á endurgreiðsluna sem kostnað, heldur horfa á heildarmyndina: „störfin sem verða til, fjárfestinguna sem kemur inn í landið, þekkinguna sem byggist upp og landkynninguna sem fylgir.“

Hann segir að ef Ísland ætli sér að vera raunverulegur valkostur í þessari samkeppni verðum við að hugsa eins og samkeppnisaðilar okkar, þar sem framleiðendur bera löndin saman. 

„Þeir skoða kostnað, hvata, aðstöðu, starfsfólk og hversu auðvelt er að koma verkefni í framkvæmd. Og þar duga góð kjör ekki ein og sér. Við þurfum líka að vera sýnileg þar sem ákvarðanirnar eru teknar.“

Alfreð veltir að lokum upp hvert hlutverk Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, KMÍ, er og spyr:  

„Erum við nógu markviss í því að sækja þessi verkefni? Hver er úti að hitta stóru framleiðendurna og streymisveiturnar og kynna það sem Ísland hefur upp á að bjóða: landið, fólkið, reynsluna og kjörin? Við höfum þegar sýnt að Ísland getur tekið á móti stærstu framleiðslum heims. Við höfum landslagið, reynsluna og fólkið. Næsta skref er að ákveða hversu stóran þátt við viljum taka í þessari alþjóðlegu atvinnugrein og haga okkur í samræmi við það.“

Alfreð segir að það þýði að tryggja að Ísland standist samanburð við þau lönd sem við keppum við og að einhver beri skýra ábyrgð á því að selja Ísland sem tökustað á alþjóðlegum markaði.

„Verkefnin eru þarna úti. Samkeppnislönd okkar eru þegar farin að sækja þau. Við eigum að gera það sama. Það er ekki nóg að bíða eftir símtalinu.“

Á árinu 2025 námu endurgreiðslur alls 6,6 milljörðum króna. Þann 19. apríl síðastliðinn var endurgreiðslan 2,2 milljarðar króna það sem af var þessa árs.

Í frétt þann 3. júlí síðastliðinn á vef Kvikmyndamiðstöðvar kom fram að fjárlagaliðurinn Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar hefur verið fullnýttur árið 2026. Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneyti mun óska eftir viðbótarfjárveitingum við undirbúning frumvarps til fjáraukalaga. Nefndin vekur athygli á að fáist ekki frekari fjárveitingar, muni útborgun vegna þeirra umsókna um útborgun endurgreiðslu sem samþykktar verða á næstu mánuðum, frestast til 2027.