Fréttir

Útlendingi neitað um örorkubætur - Byggði á undanþáguákvæði með úreltu orðalagi

Mynd
Myndin er úr safni

Umboðsmaður Alþingis tekur undir þá niðurstöðu Tryggingastofnunar, sem staðfest var af úrskurðarnefnd velferðarmála, að synja umsókn erlends ríkisborgara, sem búsettur er hér á landi, um örorkubætur. Byggði viðkomandi kröfu sína á undanþáguákvæði í reglugerð þar sem notast er við hugtak sem er ekki lengur notað í lögum um útlendinga.

Í kvörtun til umboðsmanns vegna málsins var því haldið fram að þótt viðkomandi uppfyllti ekki búsetuskilyrði, laga um almannatryggingar, fyrir því að fá örorkubætur þá hefði átt að fallast á umsóknina á grundvelli undanþáguákvæðis í reglugerð um framkvæmd almannatrygginga og skráningu í tryggingaskrá.

Í umræddum skilyrðum um búsetu, í lögum um almannatryggingar, segir meðal annars að viðkomandi verði að hafa verið tryggður í almannatryggingakerfinu í að minnsta kosti þrjú ár, til að eiga rétt á örorkubótum.

Segir í áliti umboðsmanns að fyrir liggi að umræddur einstaklingur hafi hlotið vernd hér á landi á grundvelli laga um útlendinga. Vildi viðkomandi meina að þess vegna ætti áðurnefnt undanþáguákvæði reglugerðar, um framkvæmd almannatrygginga og skráningu í tryggingaskrá, við um hann. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Einstaklingar sem íslenska ríkisstjórnin hefur veitt hæli sem flóttamönnum skulu teljast tryggðir í íslenskum almannatryggingum frá komudegi við framlagningu gagna frá Útlendingastofnun eða Þjóðskrá.“

Umboðsmaður vísar í niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála sem segi að flóttamaður sé, samkvæmt lögum um útlendinga, útlendingur sem sé utan heimalands síns eða ríkisfangslaus einstaklingur sem sé utan þess lands þar sem hann hafði reglulegt aðsetur vegna þess að hann hafi ástæðuríkan ótta um að verða ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og geti ekki eða vilji ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands.

Ekki flóttamaður

Umboðsmaður segir nefndina túlka undanþáguákvæði reglugerðarinnar þannig að það eigi aðeins við um einstaklinga sem veitt hefur verið alþjóðleg vernd sem flóttamenn. Fyrir liggi að umræddur einstaklingur hafi ekki hlotið slíka vernd en hann hlaut hins vegar vernd á grundvelli 44. greinar laga um útlendinga sem heimilar veitingu sameiginlegrar verndar, tímabundið, fyrir hóp fólks sem flýr tiltekið landsvæði.

Umboðsmaður tekur undir þá niðurstöðu Tryggingastofnunar og úrskurðarnenfdar velferðarmála um að undanþáguákvæðið eigi þar af leiðandi ekki við um þennan tiltekna einstakling, sem eigi því ekki rétt á örorkubótum.

Umboðsmaður segir hins vegar að orðalag undanþáguákvæðisins geti valdið ruglingi enda sé þar notað hugtakið hæli sem sé ekki lengur notað í lögum um útlendinga. Telur umboðsmaður þetta óheppilegt og valdi því að einstaklingar átti sig síður á réttarstöðu sinni. Lítur umboðsmaður á að með kvörtuninni sé ábendingu um þennan rugling komið á framfæri og segir að henni verði haldið til haga.