Hópi drengja frá Katar var vísað af Landsmóti skáta í lögreglufylgd eftir að þeir sýndu stúlkum sem tóku þátt á mótinu óviðeigandi hegðun.
Morgunblaðið greinir frá þessu í dag en Landsmótið fór fram á Akureyri dagana 21. til 27. júlí og voru þar samankomnir skátar á aldrinum 10-17 ára.
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að snemma á mótinu hafi orðið vart við óviðeigandi áreitni af hálfu drengja í hópnum í garð stúlkna. Þrátt fyrir tiltal lét hópurinn sér ekki segjast og var öryggisgæsla aukin. Þegar það dugði ekki til var lögregla kölluð á staðinn og hópnum vísað af mótsstaðnum.
Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, minntist á atvikið í hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar sem kom út í gær.
Sjá einnig: Segir konur geymdar í búri við Bústaðaveg: „Fólk er einhvern veginn tilbúið til þess að beina blinda auganu“
„Landsmót skáta var haldið fyrir rúmum tveimur vikum norður á Akureyri. Þar kom skátaflokkur frá Katar. Allt ungir drengir. Áreitnin og ógeðið í garð ungra stúlkna bæði frá Íslandi og öðrum löndum var slíkt að það var að lokum gripið til þeirra aðgerða að kalla til barnaverndaryfirvöld og lögreglu,“ sagði Stefán Einar meðal annars.
„Þarna eru menningarheimar að rekast á með mjög afgerandi og alvarlegum hætti. Því fyrr sem fólk opnar augun fyrir þessu, þeim mun minni líkur eru á því að við missum tökin á okkar góða samfélagi. Ég vil ekki búa í landi þar sem konur eru þvingaðar til þess að ganga með slæður eða landi þar sem ungir drengir telja sér það ekki samboðið að konur kenni þeim í skólastofunni. Þetta er samfélag sem forfeður okkar hafa byggt upp og við eigum þetta land,“ bætti hann við.
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að forsvarsmenn Skátahreyfingarinnar og lögreglan á Norðurlandi eystra hafi staðfest að málið hafi komið upp.