Þrír heppnir miðaeigendur unnu 7 milljónir króna hver þegar dregið var í Happdrætti Háskóla Íslands í gær.
Einn þeirra er fjölskyldufaðir í Hafnarfirði sem rekur lítið fyrirtæki. „Segið svo að það borgi sig ekki að styrkja gott málefni!“ sagði hann þegar honum voru færðar fréttirnar af vinningnum. Hann segist reglulega styrkja góð málefni og hafi valið númerið sitt af handahófi. Skemmtileg tilviljun réði því þó að númerið sem varð fyrir valinu tengist símanúmeri í fjölskyldunni. Hann á fjögur börn sem eru orðin nokkuð stálpuð og segir að það fyrsta sem honum detti í hug sé að fara í smá frí með fjölskyldunni.
Ætlar að standa við loforð um ísferð
Annar vinningshafi hafði lofað fjölskyldunni ís ef hann skyldi vinna og ætlar sannarlega að standa við það loforð. Vinningurinn kemur sér vel þar sem hann er að kaupa sér íbúð sem þarf að standsetja.
Þriðji svaraði ekki
Starfsfólk Happdrættisins náði ekki í þriðja vinningshafann. Það verður því eflaust skemmtilega óvænt þegar 7 milljónir króna birtast á reikningnum hjá viðkomandi.
Í tilkynningu frá Happdrætti Háskólans kemur fram að Milljónaveltan féll ekki í ágúst og því bætast 15 milljónir við pottinn í september. Einn heppinn miðaeigandi getur því unnið 45 skattfrjálsar milljónir. Í heildina fengu rúmlega 3.800 miðaeigendur vinning í ágústdrættinum og skiptu þeir á milli sín ríflega 180 milljónum króna.
Með kaupum á miða í Happdrætti Háskólans stuðla miðaeigendur að áframhaldandi uppbyggingu Háskóla Íslands og tryggja Íslendingum blómlegt háskólasamfélag. Í rúmlega 90 ár hefur HHÍ gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi með því að fjármagna uppbyggingu Háskóla Íslands. Húsnæði og tæki Háskólans eru þannig ekki reist og keypt fyrir skattfé heldur að langstærstum hluta fyrir happdrættisfé. Nær allar byggingar Háskóla Íslands, 25 talsins, hafa risið fyrir happdrættisfé. HHÍ fjármagnar líka viðhald allra bygginganna auk þess sem það fjármagnar tækjakaup fyrir bæði nemendur og kennara HÍ.
Happdrætti Háskólans óskar öllum vinningshöfum innilega til hamingju og þakkar miðaeigendum öllum stuðninginn.