Hildur Björnsdóttir borgarstjóri tekur undir fátt af því sem Pétur H. Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, hefur fram að færa um stöðu og stefnu Reykjavíkurborgar.
Í samtali við Morgunblaðið í dag hafnar Hildur málflutningi Péturs um meðal annars samgöngur, þéttingu byggðar, rekstur borgarinnar og velferðarmál. Þá gefur hún lítið fyrir hugmyndir hans um að möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu gæti haft jákvæð áhrif á fjárhag borgarinnar.
Pétur hafði áður sagt að bílastæðum hefði fjölgað og götur ekki verið þrengdar, en leiðrétti síðar þau ummæli. Hildur segir fyrri meirihluta hafa unnið markvisst að fækkun bílastæða ofanjarðar og þrengt að umferð.
„Við ætlum okkur að innleiða samgöngustefnu sem byggist á því að koma fólki hraðar á milli staða, hvaða fararmáta sem það velur, og hverfa frá þessum skipulögðu töfum. Ég get því ekki tekið undir þessar fullyrðingar Péturs,“ segir Hildur við Morgunblaðið.
Hún hafnar einnig þeirri gagnrýni Péturs að grimmari tónn sé kominn í garð þeirra sem eiga undir högg að sækja.
„Þetta þykir mér úr lausu lofti gripið,“ segir Hildur og leggur áherslu á að þótt hagræða þurfi í rekstri verði staðið vörð um lögbundna þjónustu.
Þau greinir sömuleiðis á um þéttingu byggðar. Pétur telur hana ekki hafa verið mistök en Hildur segir framkvæmdina hafa skapað mikið álag á innviði í rótgrónum hverfum. Hún segir nú unnið að skipulagningu nýrra hverfa og breyttum áherslum.
Þá hafnar Hildur þeirri sýn Péturs að rekstur borgarinnar sé með ágætum.
„Reksturinn er ekki sjálfbær. Skatttekjur duga ekki fyrir útgjöldum. Þetta er ósköp einfalt,“ segir hún og boðar töluverðan niðurskurð á næstu árum.
Nánar er rætt við Hildi í Morgunblaðinu í dag.