Almyrkvi á sólu gengur yfir vestanvert Ísland í dag. Almyrkvinn fer yfir vestanvert Ísland á örfáum mínútum, frá Vestfjörðum um kl. 17:44 til Reykjanesskaga um kl. 17:49. Annars staðar á landinu sést deildarmyrkvi, á deildarmyrkvinn að hefjast kl. 16:47, lýkur honum svo kl. 18:45.
Líkt og fjallað var um fyrr í dag er þetta í fyrsta sinn frá árinu 1954 sem almyrkvi frá sólu er sjáanlegur frá Íslandi, mestu áhyggjurnar eru af skýjahulunni. Veðurstofan getur ekki útilokað að það sjáist til sólar þó að heildarskýjahulan gefi til kynna að það verði alskýjað yfir landinu.
Sjá einnig: Ísland í heimsfréttunum af augljósum ástæðum
Ýmsir aðilar, þar á meðal fréttastofur, munu halda úti beinni útsendingu, bæði frá Íslandi og Spáni, líkt og sjá má hér fyrir neðan.
Streymi Livestream Events:
Streymi Times Now:
Streymi CNBC:
Streymi AP:
Streymi AfarTv