Fréttir

Trump smyglað úr Air Force One í veitingabíl vegna ótta við morðtilræði

Mynd
Mynd/Getty

Donald Trump Bandaríkjaforseta var komið með leynd úr forsetaflugvélinni Air Force One og yfir í aðra herflugvél í síðasta mánuði vegna ótta um að Íranar kynnu að reyna að ráða hann af dögum.

The New York Times og Washington Post greina frá þessu og lýsa umfangsmikilli aðgerð sem virðist hafa verið svo leynileg að jafnvel sumir starfsmenn Hvíta hússins vissu ekki hvað raunverulega var í gangi.

Þetta gerðist þegar Trump var á heimleið eftir leiðtogafund NATO í Tyrklandi. Trump var myndaður þegar hann gekk um borð í eldri Air Force One-vél í Ankara sem átti að fljúga til bandarískrar herstöðvar í Bretlandi. Samkvæmt heimildum miðlanna var það hins vegar aðeins blekking.

Komið fyrir í matarvagni

Trump var að sögn komið fyrir í matarvagni sem síðan var fluttur úr vélinni með veitingabíl flugvallarins. Bíllinn ók honum að minni C-32A-herflugvél sem beið skammt frá og flaug hann með henni til Bretlands.

Blekkingin virðist hafa gengið svo langt að blaðamenn og jafnvel einhverjir starfsmenn Hvíta hússins um borð í Air Force One töldu forsetann vera með í för. Blaðamönnunum var jafnframt gert að draga niður gluggahlífarnar sem vakti athygli þeirra.

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ferðaðist með Trump í minni vélinni.

Þegar vélarnar lentu í Bretlandi var Trump að sögn komið aftur yfir í Air Force One. Þaðan hélt hann síðar til Washington með nýrri Boeing 747-8-vél sem stjórnvöld í Katar gáfu Bandaríkjunum.

Á leiðinni ræddi Trump við blaðamenn í um 15 mínútur og talaði meðal annars um þá ógn sem hann telur stafa af Íran.

Þegar hann var spurður hvers vegna blaðamönnum hefði verið gert að draga fyrir gluggana í Tyrklandi svaraði hann að þeir hefðu líklega verið í „hættulegu flugi vegna skíthælanna sem við þurfum að eiga við“ og átti þar við Íran.

Trump sagði jafnframt að lífi sínu væri stöðugt ógnað. „Ég er númer eitt á listanum,“ sagði hann og vísaði þar til Írana.

Hótanir áberandi að undanförnu

Í umfjöllun Daily Mail um málið, sem byggist meðal annars á umfjöllunum New York Times og Washington Post, kemur fram að hótanir frá Íran hafi verið áberandi að undanförnu.

Í síðustu viku birtist meðal annars risavaxinn borði á Tajrish-torgi í Teheran þar sem Trump var sýndur í miðju blóðrauðs skotmarks. Undir myndinni stóð á ensku: „There will be blood“, eða „Blóð mun renna“.

Íranskir fjölmiðlar hafa einnig beint sjónum að fjölskyldu forsetans. Í nýlegu myndskeiði sem gert var með gervigreind var meðal annars fjallað um staði sem Melania Trump forsetafrú sækir og mögulegar leiðir til að ráðast gegn henni.

Beita öllum mögulegum úrræðum

Steven Cheung, samskiptastjóri Hvíta hússins, hafði áður gefið til kynna að gripið hefði verið til óvenjulegra öryggisráðstafana þegar Trump yfirgaf Tyrkland.

„Eins og forsetinn hefur sagt að undanförnu eiga Bandaríkin marga óvini sem hafa hann í sigtinu og við beitum öllum þeim úrræðum sem við höfum yfir að ráða – þar á meðal að dreifa athyglinni og villa um fyrir fólki – til að bregðast við þessum ógnum,“ sagði Cheung við The New York Times.

Aðgerðirnar benda til þess að bandarísk öryggisyfirvöld hafi tekið hótanir gegn forsetanum mjög alvarlega.

Málið hefur einnig vakið athygli vegna nýju forsetavélarinnar sem yfirvöld í Katar gáfu Bandaríkjamönnum. The New York Times hefur greint frá því að hana skorti enn hluta þess sérhæfða varnarbúnaðar sem eldri forsetavélar hafa, þar á meðal varnir gegn eldflaugum.

Trump hefur sjálfur viðurkennt að bæta þurfi öryggisbúnað vélarinnar og sagði hana hafa verið tekna tímabundið úr notkun á meðan frekari breytingar væru gerðar.

Hvíta húsið hefur hins vegar lagt áherslu á að vélin sé örugg og búin þeirri tækni sem nauðsynleg sé til að sinna hlutverki forsetavélar.

Cheung hefur jafnframt tekið fram að öryggisráðstafanirnar í Tyrklandi hafi ekki verið vegna sérstakrar ógnar gegn vélinni sjálfri heldur hótana gegn Trump.