Fréttir

Krónan skiptir aftur yfir í gömlu hakkumbúðirnar

Mynd
Nýju umbúðirnar og eldri umbúðir af nautahakki. Samsett mynd/Krónan

Krónan hefur ákveðið að skipta aftur yfir í gömlu umbúðirnar á Krónu ungnautahakki og Ódýrt nautgripahakki þar sem upp hafa komið tilvik þar sem nýju umbúðirnar, sem eru í plastpokum, hafa lekið. 

Verslunarkeðjan skipti nýverið um umbúðir á Krónu ungnautahakki og Ódýrt nautgripahakki. Í tilkynningu vegna breytinganna segir að með nýju umbúðunum sé notað um 60% minna plast og á ársgrundvelli sé sparað um átta tonn af plasti. Þá verði ungnautahakkið í 400 gramma pakkningum og nautgripahakk í 700 gramma pakkningum, við breytingarnar hafi kílóverðið einnig lækkað. 

Töluverð umræða skapaðist í Facebookhópnum Matartips! þegar birt var birt úr verslun Krónunnar þar sem rauðleitur vökvi sést í hillunum. Í umræðunum þar finna margir umbúðunum allt til foráttu á meðan aðrir benda á að hakk sé selt í sambærilegum umbúðum víða erlendis. 

Mynd
Skjáskot af Facebook.

Í umfjöllun Vísindavefsins segir að það sé ekki blóð í nautakjöti til manneldis, eftir slátrun séu skrokkar blóðtæmdir. 

„Sá rauði vökvi sem kemur í ljós þegar til dæmis léttsteikt nautakjöt er skorið er í raun bara blóðlitað vatn. Það er fyrst og fremst litað af mýóglóbíni eða vöðvarauða, sem er prótín, ekki ósvipað prótíninu hemóglóbíni eða blóðrauða, og inniheldur járnatóm sem notuð eru til að binda súrefni, sem er flutt í þessum prótínum,“ segir á Vísindavefnum.

Leki ekki ásættanlegur

DV bar þetta undir Krónuna sem segir að verslunin sé stöðugt að leita leiða til að draga úr óþarfa plastnotkun og nýju hakkumbúðirnar séu liður í þeirri vegferð. „Sambærilegar lausnir hafa verið notaðar með góðum árangri erlendis og með breytingunni gátum við jafnframt boðið hentugra magn og lægra kílóverð,“ segir í svari Krónunnar.

„Nú hafa hins vegar komið upp tilvik þar sem saumurinn á umbúðunum hefur ekki haldið sem skyldi og leki því komið upp. Það er að sjálfsögðu ekki ásættanlegt og umbúðirnar uppfylla ekki þá gæðastaðla sem við gerum kröfu um.“

Hefur því verið ákveðið að taka aftur upp gömlu umbúðirnar:

„Á meðan við vinnum með framleiðanda að lausn höfum við ákveðið að færa okkur tímabundið aftur yfir í þær umbúðir sem við notuðum áður. Hakk verður því áfram í boði hjá okkur eins og áður og breytingin hefur ekki áhrif á framboð til viðskiptavina,“ segir í svari Krónunnar.

„Viðskiptavinir sem hafa keypt hakk í umbúðum sem hafa reynst gallaðar geta komið með vöruna í næstu verslun Krónunnar og fengið hana bætta. Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.“

Verslunarkeðjan mun þó halda áfram að prófa nýjar og umhverfisvænar lausnir, þær þurfi þó að standast kröfur þeirra og viðskiptavina. „Við vonumst til að geta leyst þetta hratt og vel og tekið nýju umbúðirnar aftur í notkun þegar við erum fullviss um að þær standist okkar kröfur.“