Fréttir

Wilhelm Wessman er látinn

Mynd

Wilhelm Wessman, frumköðull á sviði hótel- og veitingareksturs hér á landi, lést á Landspítalanum síðastliðinn mánudag, 3. ágúst.

Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í dag.

Wilhelm fæddist 2. október 1942 á Höfn í Hornafirði og var sonur hjónanna Elofs Wessman klæðskerameistara og Dagnýjar Wessman húsmóður.

Wilhelm hóf störf á Hótel Sögu árið 1967 eftir að hafa lokið kennaraprófi í hótelfræðum frá ENALC-hótelskólanum á Ítalíu. Hann gegndi margvíslegum störfum á Hótel Sögu og var meðal annars framkvæmdastjóri ráðstefnu- og veitingareksturs á árunum 1982-1989.

Í upprifjun Morgunblaðsins kemur fram að Wilhelm hafi markað djúp spor í íslenska ferðaþjónustu og hótelgeirann. Þekking hans nýttist þó einnig úr fyrir landsteinana og var hann ráðgjafi og svæðisstjóri hjá InterContinental Hotels Group á árunum 1994 til 2002.

Eftirlifandi eiginkona Wilhelms er Ólöf Wessman og eru börn þeirra Linda, Róbert og Gunnhildur. Barnabörnin eru sex og barnabarnabarn eitt.