Fréttir

Töluverður fjöldi líkamsárása í Reykjavík

Mynd
Miðborg Reykjavíkur. Myndin er úr safni.

Tilkynnt var alls um sjö líkamsárásir í gærkvöldi og nótt á umráðasvæði lögreglustöðvar 1 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sú stöð sér um löggæslu í miðbæ, vesturbæ og austurbæ Reykjavílur auk Seltjarnarness.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en eins og kunnugt er standa hinsegin dagar yfir í Reykjavík og í gær fór gleðigangan fram í miðborginni.

Ekki koma fram frekari upplýsingar um þessar líkamsárásir en önnur verkefni lögreglustöðvar 1 voru að 3 ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis en einn þeirra ók HOPP bifreið.

Einn ökumaður var stöðvaður án réttinda

Einn ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna.

Tilkynnt  var um innbrot í heimahús, einn aðili handtekinn og gistir hann nú fangageymslu þar til hægt verður að taka af honum skýrslu.

Tilkynnt var um hóp ungmenna í miðborg Reykjavíkur og átti eitt þeirra að hafa verið með hníf en hver niðurstaðan var i því máli kemur ekki fram.

Lögregla var einnig kölluð til vegna samkvæmishávaða.

Óskað var aðstoðar vegna aðila sem neitaði að yfirgefa bráðamóttöku Landspítalans. Vísa þurfti manninum burt.

Aðrar lögreglustöðvar á höfuðborgarsvæðinu þurftu aðallega að eiga við ökumenn sem óku undir áhrifum en lögreglumenn frá lögreglustöð 4 sem vaktar Árbæ, Grafarvog, Grafarholt, Kjalarnes og Mosfellsbæ stöðvuðu ökumann sem var á bíl með vetrardekkjum en lögreglan minnir á að tímabil nagladekkja hefst 1. nóvember, þótt tíðin í sumar hafi valdið vonbrigðum á höfuðborgarsvæðinu.