Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar manndráp sem framið var á Kársnesi í Kópavogi fyrr í dag.
Þetta herma heimildir RÚV.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi fyrr í dag út tilkynningu um að til rannsóknar væri alvarleg líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi. Heimildir RÚV herma að það hafi nánar til tekið verið á Kársnesi.
Einn maður var handtekinn vegna árásarinnar sem hefur nú endað með andláti þess einstaklings sem fyrir henni varð.