Rabbíninn umdeildi Shmuley Boteach hefur verið á ferð á Íslandi undanfarið. Hefur hann, í kjölfar ýmissa uppákoma, sagt Íslendinga vera gyðingahatara og það sé ekki öruggt fyrir Gyðinga að vera á Íslandi. Í nokkrum nýjum myndböndum hefur hann ítrekað þessar ásakanir sínar og segir þau sýna áreitni og ofbeldi í sinn garð. Ekki er hins vegar að sjá eða heyra nokkurt slíkt í umræddum myndböndum og í fjölda athugasemda við þau fær málflutningur rabbínans takmarkaðar undirtektir.
Boteach er þekktur fyrir m.a. bókaskrif, heimildarmyndagerð og einarðan stuðning sinn við Ísrael og Donald Trump forseta Bandaríkjanna. Hann greindi frá því í lok júlí að hann væri kominn til Íslands til að komast að því hvers vegna svo margir hér á landi væru ósáttir við Ísrael.
Sjá einnig: Frægur rabbíni vinnur að heimildarmynd um Ísland:„Við ætlum að reyna að komast til botns í þessu“
Orðaskak
Fjallað hefur verið um það í hérlendum fjölmiðlum að Boteach hafi margsinnis lent í orðaskaki við Íslendinga meðan á dvölinni hefur staðið.
Meðal annars sakaði hann Íslending sem sagði við hann á Akureyri: „Fuck Israel“ um að hafa haft uppi gyðingahatur í sinn garð. Viðkomandi sagði þó ekkert slíkt við rabbínann. Einnig kom upp atvik á bar í miðborg Reykjavíkur þar sem Boteach hafði uppi svipaðar ásakanir og sagði að sér hefði verið vísað út vegna þess að hann væri Gyðingur. Á samfélagsmiðlum var hins vegar fullyrt að Boteach hefði veist að gestum á staðnum og haft frumkvæði að illdeilum.
Í enn einu myndbandi ræddi rabbíninn á rólegri nótum við Íslending sem sagði honum að hér á landi væri mikil samúð með Palestínumönnum og þar sem Boteach væri þekktur sem mikill stuðningsmaður Ísraels hefðu sumir látið hann heyra það, fyrst og fremst vegna stuðningsins við Ísrael en ekki vegna þess að hann væri Gyðingur. Boteach gaf lítið fyrir þetta og lagði áherslu á að hann væri Bandaríkjamaður en ekki Ísraeli. Hann minntist þó ekki á það í myndbandinu að synir hans hafa barist með ísraelska hernum. Vildi hann meina að sem Bandaríkjamaður ætti hann skilið meiri kurteisi frá Íslendingum vegna þess að landar hans hefðu bjargað Íslandi í seinni heimstyrjöldinni. Þar fór hann hins vegar ansi frjálslega með sögulegar staðreyndir.
Á samfélagsmiðlum hefur verið kvartað yfir framgöngu rabbínans hér á landi og fullyrt að hann hafi komið hingað gagngert til að stofna til illdeilna og að yfirleitt sé það hann sem eigi frumkvæðið að þeim rifrildum sem komi fyrir í myndböndum hans.
Þeir hörðustu kölluðu eftir því að honum og þeim sem hefðu barist með ísraelska hernum yrði vísað úr landi.
Sjá einnig: Kallar eftir farbanni á alla tengda Ísraelsher – Rabbíninn á leið úr landi
Miðbærinn
Boteach hefur sagst vera á leið úr landi en hann hefur birt á samfélagsmiðlum röð nýrra færslna og myndbanda þar sem hann úthúðar Íslendingum og segir þá vera gyðingahatara upp til hópa og Gyðingum sé ekki óhætt á Íslandi. Í sumum myndbandanna má sjá hann í deilum, ásamt samferðafólki sínu, við fólk á götum miðborgar Reykjavíkur.
Segir rabbíninn ýmist í myndböndunum að viðkomandi hafi ráðist á, áreitt sig og samferðafólk sitt eða hvort tveggja. Kallað hafi verið á þau að frelsa eigi Palestínu og þau einnig verið kölluð barnamorðingjar, sem rabbíninn furðar sig á í ljósi þess að þau séu bandarískir Gyðingar en minnist þó ekki á að synir hans hafi barist með ísraelska hernum.
Í myndböndunum er þó ekki heyra nein slík orð en mögulega hafa þau verið látin falla áður en Boteach dró upp símann og hóf að taka samskiptin upp. Í einu myndbandi má heyra ógreinileg köll en rabbíninn fullyrðir að þar hafi verið hrópað á frelsi Palestínu og um áreitni og árás í garð hópsins sé að ræða.
Í einu myndbandi hrópar Boteach á tvo unga menn og segir þá hafa sagt að allir Gyðingar væru morðingjar. Annar þeirra gerir þó í myndbandinu ekki annað en að mynda hjartatákn með höndunum og tala um frið og ást. Hinn ungi maðurinn segir honum að koma með sér og hætta samskiptunum við Boteach og samferðafólk hans. Hann segir þó að skilnaði við hópinn: „Free Palestine“ sem rabbíninn og hans fólk taka mjög óstinnt upp.
Lausleg athugun á hluta þeirra fjölda athugasemda sem ritaðar hafa verið við myndböndin gefur til kynna að undirtektirnar við málflutninginn og fullyrðingarnar í þeim séu litlar. Athugasemdirnar eru ritaðar af fólki víða að úr heiminum. Er framganga rabbínans gagnrýnd og hann sagður hafa verið gagngert að stofna til illdeilna og sýni af sér allt of mikinn stuðning við Ísrael. Sumir segja að myndböndin leiði ekkert gyðingahatur í ljós heldur aðeins gagnrýni á málflutning rabbínans og framgöngu Ísrael gegn Palestínumönnum. Aðrir spyrja hvar ofbeldið sem hann lýsi sé að finna í myndböndunum.
Einhverjir taka þó undir með rabbínanum og dreifa í eigin færslum myndböndunum með þeim orðum að þau sýni árás á hann. Miðað við það sjá má í þeim er hins vegar varla hægt að taka undir það.