Fréttir

Manndrápið á Kársnesi – Nágranni segir rólegt, miðaldra par hafa búið í húsinu

Mynd
Frá Kársnesi. Mynd Já.is

Maður sem lést eftir líkamsárás í heimahúsi á Kársnesi á sunnudag var staddur í einbýlishúsi í rólegri götu í hverfinu. Nágranni sem DV náði tali af á sunnudagskvöld var heima þegar lögregluaðgerð átti sér stað en hann varð ekki mikið var við hana, nema hvað hann sá lögreglubíla fyrir utan gluggana á sínu heimili.

Nágranninn segist aldrei hafa orðið var við ónæði í húsinu þar sem maðurinn lést. Þar hefur búið erlent par á miðjum aldri, karl og kona. Nágranninn þekkir þau ekki en segist hafa boðið þeim góðan dag eins og gengur og þau gert hið sama. Nágranninn veit ekki til þess að börn hafi búið í húsinu heldur eingöngu þessi maður og þessi kona. Með öllu er óvíst á þessari stundu hvort og hvernig þau tengjast málinu. 

Þess má geta að enginn er skráður til heimilis í umræddu húsi, hvorki í þjóðskrá né á Já.is. 

Nokkrir menn voru handteknir vegna málsins á sunnudag, óvíst hvað margir. Einn var handtekinn í húsinu eða fyrir utan það og nokkrir til viðbótar voru handteknir fyrir utan eða inni í verslunarhúsnæði við Gnoðarvog. Einhverjir þeirra búa þar í íbúðarhúsnæði á annarri hæð. 

Margir hinna handteknu, ef ekki allir, eru Íslendingar, samkvæmt heimildum DV. 

Samkvæmt frétt Vísis sáust tveir menn hlaupa frá húsinu á Kársnesi, að líkindum rétt eftir líkamsárásina. Í sömu frétt kemur fram að minnst tveir menn voru leiddur út í járnum úr húsnæðinu við Gnoðarvog. 

Lést á Landspítalanum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því að maðurinn sem varð fyrir líkamsárásinni á Kársnesi hafi látist síðdegis á Landspítalanum. Tilkynning lögreglu um málið er eftirfarandi: 

„Maðurinn sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi lést á Landspítalanum síðdegis.

Einn var handtekinn fljótlega eftir að málið kom upp og nokkrir til viðbótar í aðgerðum lögreglu í austurhluta Reykjavíkur.

 Rannsókn málsins er í algjörum forgangi hjá embættinu, en ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.“