Maður sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi lést á Landspítalanum síðdegis.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningunni er jafnframt staðfest að tengsl séu á milli manndrápsins og lögregluaðgerða við verslunarmiðstöð í Gnoðarvogi í dag, en í tilkynningunni segir orðrétt:
„Einn var handtekinn fljótlega eftir að málið kom upp og nokkrir til viðbótar í aðgerðum lögreglu í austurhluta Reykjavíkur.“
Ennfremur segir að rannsókn málsins er í algjörum forgangi hjá lögreglu en ekki verði veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.