Landhelgisgæslan hefur gert athugasemd við áform um að breyta tveimur fjölbýlishúsum á Ásbrú í Reykjanesbæ í hjúkrunarheimili. Bendir varnarmálasvið Gæslunnar á að húsin séu um 650 metra frá þeim hluta Keflavíkurflugvallar sem ætlaður er undir flug herflugvéla. Vill gæslan meina að ekki sé tekið nægilega mikið mið af þessu í skipulagstillögu vegna áformanna og þar af leiðandi skorti fullnægjandi útreikninga á hljóðvist í húsnæðinu vegna nálægðarinnar við flugvöllinn og tilheyrandi hávaða sem fylgi honum.
Málið var tekið fyrir á fundi skipulagsráðs Reykjanesbæjar á föstudag. Í fundargerð segir að fyrirtækið Icelandic Home ehf. hafi lagt fram fram erindi varðandi breytingu á tveimur fjölbýlishúsum með 81 íbúð í hjúkrunarheimili með 90 rýmum. Lóðir húsanna tveggja, sem standavið Keilisbraut 753 og 754 á Ásbrú, verði um leið sameinaðar.
Erindið var grenndarkynnt eigendum húsanna að Keilisbraut 747, 748, 750, 751, 755, 762 og 771. Miðað við athugasemdir í skipulagsgátt eru allir þessir eigendur samþykkir áformunum. Meðal þeirra sem rita athugasemd er Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar en bærinn á Keilisbraut 755, sem er við hliðina á Keilisbraut 754, en í fyrrnefnda húsinu er rekin dagþjónusta fyrir fatlað fólk. Segist Vilhjálmur fyrir hönd bæjarins samþykkja áform um að breyta Keilisbraut 753 og 754 í hjúkrunarheimili.
Herflugvöllur
Í athugasemd frá varnarmálasviði Landhelgisgæslunnar er hins vegar minnt á að Keflavíkurflugvöllur er bæði her- og borgaralegur flugvöllur. Vegna m.a. hernaðarlegs flugs sem um völlinn fari sé æskilegt að við gerð skipulaga, sérstaklega deiliskipulags séu gerðar miklar hljóðvistarkröfur til húsnæðis á svæði sem sé í nálægð við flugvöllinn. Í hljóðvistarútreikningum svæðisins sem almenn sé byggt á sé ekki tekið tillit til herflugs. Því megi búast við að raunhljóðvist sé slakari en útreiknað kort sýni.
Svæðið sem umræddar byggingar séu á sé um 650 metra frá virkri starfsemi á flughlöðum Keflavíkurflugvallar. Hávaði og ónæði frá starfsemi flugvallarins kunni að berast inn i fyrirhuguð dvalarrými á öldrunarheimili og því væri að mati Landhelgisgæslunnar ástæða til að kanna nánar hvort þörf sé að skoða auknar kröfur til hönnunar byggingarinnar með tilliti til hljóðvistar.
Það svæði Keflavíkurflugvallar sem næst er umræddum byggingum er einkum ætlað fyrir flug sem tengist varnartengdri starfsemi og Landhelgisgæslan fer með umsjón þess. Eins og íbúar á Suðurnesjum þekkja margir þá gefa herflugvélar yfirleitt frá sér hærra hljóð en farþegaflugvélar og það á ekki síst við um herþotur.
Hljóð og ábyrgð
Í aðaluppdráttum sem aðgengilegir eru í skipulagsgátt er ekkert minnst sérstaklega á flugvöllinn þegar kemur að hljóðvist. Þar segir meðal annars að kröfur byggingareglugerðar um hljóðvist verði uppfylltar. Hljóðdeyfandi efni verði notuð á veggjum og í lofti eftir þörfum. Þegar kemur að hljóði utan frá segir m.a. að farið verði eftir ákvæðum reglugerðar um hávaða. Gerð sé krafa um að hljóðstig innan einkarýma vegna umferðar ökutækja og annarra hávaðagjafa, sé að hámarki 30 desíbel, miðað við lokaða glugga en opnar loftrásir. Umhverfishávaði í kringum hið fyrirhugaða hjúkrunarheimili sé tiltölulega lítill en til þess að tryggja að hljóðstig innanhúss sé örugglega allsstaðar innan marka séu gerðar kröfur til hljóðeinangrunar glugga.
Fram kemur í fundargerð skipulagsráðs Reykjanesbæjar að þessi athugasemd Landhelgisgsælunnar hafi verið rædd á fundinum. Ráðið segir í fundargerð að töluleg gögn um hávaða vegna umferðar herflugvéla liggi ekki fyrir og því sé ekki hægt að meta hvort hljóðvist sé „slakari“ og þá hve „miklar hljóðvistarkröfur“ þurfi að gera vegna þess að gögn um umhverfisáhrif starfseminnar, á núverandi 5000 íbúa byggð á Ásbrú, liggi ekki fyrir. Segir ráðið að lokum að ábendingu um þetta sé komið á framfæri við lóðarhafa sem bregðist við á eigin ábyrgð. Samþykkti Skipulagsráð síðan áformin um að breyta þessum tveimur fjölbýlishúsum í hjúkrunarheimili.