Fréttir

Kristrún boðar til hlustunarfunda

Mynd
Kristrún Frostadóttir, DV/KSJ

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðar á samfélagsmiðlum til fundaraðar víða um land nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunar 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna Íslands við ESB. Kallar hún fundina hlustunarfundi.

Kristrún skrifar á samfélagsmiðlum:

„Næstu vikur ætla ég að halda hlustunarfundi vítt um land. Til að hlusta á ólík sjónarmið og eiga hreinskiptið samtal um hagsmuni Íslands. Hver eru tækifærin? En áhyggjurnar? Hvernig vinnum við áfram með leiðsögn þjóðarinnar 29. ágúst? Til að styrkja Ísland. Ég hlakka til að hitta ykkur – og ég veit að þessi hlustunarfundir verða gott veganesti fyrir haustið.“

Borið hefur á gagnrýni í garð Kristrúnar fyrir að beita sér lítið í umræðunni um atkvæðagreiðsluna, nú síðast frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur formanni Vinstri grænna.

Með fundaröðinni virðist Kristrún hins vegar ætla að taka fullan þátt í umræðunni.

Fundarstaðir og tímasetningar eru eftirfarandi:

REYKJANESBÆR

Fjölbrautaskóli Suðurnesja, þriðjudagur 11. ágúst kl. 20:30

ESKIFJÖRÐUR

Eskifjarðarskóli, miðvikudagur 12. ágúst kl. 20:30

DJÚPIVOGUR

Langabúð, fimmtudagur 13. ágúst kl. 8:30

AKUREYRI

Hamar (félagsheimili Þórs), sunnudagur 16. ágúst kl. 12:00

PATREKSFJÖRÐUR

Verbúðin, þriðjudagur 18. ágúst kl. 12:00

BORGARFJÖRÐUR

Félagsheimilið Brún í Bæjarsveit, þriðjudagur 18. ágúst kl. 20:00

SELFOSS

Miðbæjartorgið (nýja miðbænum), mánudagur 24. ágúst kl. 17:00

KÓPAVOGUR

Salurinn, mánudagur 24. ágúst kl. 20:00

REYKJAVÍK

Staðsetning auglýst síðar, miðvikudagur 26. ágúst kl. 17:30

Kristrún bætir við að lokum að hún verði einnig á Hólahátíð í Skagafirði og í Hornafirði vegna vinnufundar ríkisstjórnar í næstu viku.