Einhverjar hræringar og breytingar virðast vera að eiga sér stað innan Vinstri hreyfingarinnar-Græns framboðs þegar kemur að afstöðu flokksins til inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Samkvæmt könnunum ætlar mikill meirihluti stuðningsmanna flokksins að segja já við því, í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, að halda áfram aðildarviðræðum Íslands og ESB. Formaður flokksins ætlar að segja já í atkvæðagreiðslunni og mun ekki mælast til þess að flokksmenn greiði atkvæði í samræmi við yfirlýsta stefnu flokksins sem er að Ísland eigi ekki að ganga í ESB. Forveri formannsins ætlar hins vegar að segja nei og það sama á við um fleiri áhrifamikla flokksmenn.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vinstri grænna greinir frá þessari afstöðu sinni í viðtali við fjölmiðilinn Gímaldið.
Í nýlegri skoðanakönnun Maskínu fyrir DV kom fram að 93 prósent þeirra sem sögðust styðja flokkinn ætluðu sér að kjósa já þann 29. ágúst og í umfjöllun Gímaldsins kemur fram að í annarri könnun hafi 65 prósent þeirra sem sögðust styðja flokkinn einnig stutt aðild Íslands að ESB.
Sjá
Rósa Björk segir við Gímaldið að hún vilji sjá hvað komi út úr aðildarviðræðum og ætli ekki að gefa út neina flokkslínu vegna atkvæðagreiðslunnar í ljósi þess að kannanir sýni mikinn stuðning, meðal flokksmanna, við áframhaldandi viðræður.
„Þetta sýnir náttúrulega eindreginn og skýran vilja meðal kjósenda VG til að segja já við áframhaldandi viðræðum við ESB og við í forystu flokksins þurfum auðvitað að hlusta á og taka til okkar þau skilaboð frá kjósendum og líka þau skilaboð sem virkir félagar hafa komið á framfæri við okkur og aðra.“
Hún segist einnig hafa fundið fyrir þessum viðhorfum á fundum innan flokksins.
Rósa rekur í viðtalinu þessar breytingar, á afstöðu flokksmanna til ESB, meðal annars til kynslóðaskipta innan flokksins og ástandsins í alþjóðamálum þar sem vegið sé að Evrópu, lýðræði og mannréttindum. Hún vísar einnig til efnahagslegra ástæðna svo sem hás lántökukostnaðar á Íslandi.
Þrátt fyrir að Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi formaður Vinsti grænna ætli að kjósa nei í atkvæðagreiðslunni sem og borgarfulltrúinn Stefán Pálsson, auk þess sem að ungliðahreyfing flokksins beitir sér fyrir því að kjósendur velji nei þá segir Rósa Björk að þessi ólíku viðhorf rúmist vel innan flokksins:
„Ég virði þessar skoðanir allar,“ segir hún.
Hvar er Kristrún?
Rósa Björk gagnrýnir í viðtalinu ráðherra og þingmenn Samfylkingarinnar fyrir að hafa tekið takmarkaðan þátt í umræðunni um atkvæðagreiðsluna. Hún telur að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi átt að beita sér meira:
„Hún er formaður Samfylkingarinnar og það er ekki hægt að hlaupast undan því.“
Telur Rósa mögulegt að Samfylkingin vilji stíga varlega til jarðar og lágmarka áhrifin á ríkisstjórnarsamstarfið verði niðurstaða þjóðarinnar að segja nei við áframhaldandi aðildarviðræðum.
Viðtal Gímaldsins við Rósu Björk Brynjólfsdóttur má heyra í heild sinni hér fyrir neðan.