Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa viðrað undrun sína á ákvörðun Silju Báru Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands, að færa áætlaðan fyrirlestur svissneska lögfræðingsins Carls Baudenbachers um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu úr hátíðarsalnum yfir í annan sal. Líkt og fjallavar um í morgun hafa Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Ragnar Árnason, báðir fyrrum prófessorar við Háskóla Íslands, skorað á rektor að endurskoða ákvörðunina og leyfa fyrirlestrinum að fara fram í hátíðarsalnum.
Sjá einnig: Hannes og Ragnar skora á rektor að leigja þeim hátíðarsalinn
„Hvernig eru þessar reglur?,“ spyr Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í færslu á Facebook þar sem hann deilir bréfi Hannesar og Ragnars.
„David Miliband þingmaður og fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Gordon Brown sem beitti okkur hryðjuverkalögum mátti halda fyrirlestur um að við ættum að ganga í ESB í hátíðarsal HÍ. En Carl Baudenbacker fræðimaður sem hefur gefið út 40 bækur um fræðisvið sitt. Var dómsforseti EFTA dómstólsins verið heiðursgestur á samkomum Dómarafélagsins, Lögmannafélagsins og félags Lögfræðinga svo eitthvað sé nefnt. Honum er úthýst! Af því fræðilegi fyrirlesturinn hans er of pólitískur? Skilur einhver þetta?“
Margir taka undir með honum, þar á meðal þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir og Jens Garðar Helgason.
Búið að bjóða annan sal
Í svari Silju Báru við fyrirspurn Eyjunnar segir að Háskólinn hafi enga aðkomu að viðburðinum. „Í umsókn um leigu á salnum fyrir viðburðinn kom ekki fram að hann væri á vegum hreyfingarinnar „Áfram Ísland“ og hefði slík umsókn ekki verið samþykkt á grundvelli þeirra almennu sjónarmiða sem um salarleiguna gilda. Unnið er að því að finna annan vettvang fyrir viðburðinn.“ Þá sé búið að bjóða þeim annan sal en hátíðarsalinn til afnota.
Frosti Sigurjónsson, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins, furðar sig einnig á ákvörðuninni. „Vonandi sér rektorinn að sér, ekki viljum við sitja uppi með rektor sem óttast frjálsa hugsun og umræður,“ segir hann.
Fyrrum bankamaðurinn Ragnar Önundarson viðrar sína kenningu um málið: „Nýskipaður rektor hefur verið beittur pólitískum þrýstingi.“
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, svarar honum og segir:
„Er ekki rétt að segja að hún sé að beita sinni pólitík. Þetta er fyrir neðan allar hellur og hlýtur að verða leiðrétt. Það er við aðstæður sem þessar sem rektor Háskóla Íslands á að standa í lappirnar gagnvart pólitískum þrýstingi.“
Hannes: Skýrt út fyrir rektor
Margir hafa þó viðrað öndverða skoðun og telja að Háskólinn vilji vera hlutlaus í umræðunni og vilji því ekki fyrirlestur í hátíðarsalinn sem er auglýstur af öðrum aðila í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið.
Hannes Hólmsteinn vísar í máli sínu á fyrri fyrirlestra í hátíðarsalnum, þar á meðal fyrirlestur í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesavesamningana árið 2011.
„Því má síðan bæta við, af því að ég skipulagði mjög marga viðburði á vegum Háskólans, sem nutu stuðnings annarra aðila, að þessir aðrir aðilir auglýstu oft fundina, og var aldrei gerð nein athugasemd við það. Ég taldi upp þrjá viðburði, en þeir voru miklu fleiri. Þetta var allt skilmerkilega skýrt út fyrir rektor, áður en hún fór í fjölmiðla. Hún hafði því allar upplýsingar.“