Fréttir

Sindri Freyja grýtt eftir Gleðigönguna: „Tóku þá ákvörðun að það má bara drepa transfólk á götunni“

Mynd

„Á leiðinni heim var grýtt stein í mig. Hann fór rúman hálfan metra frá höfðinu mínu,“ segir Sindri Freyja Bjarnarbur í myndbandi sem hán deilir á Facebook, myndbandið hefur vakið mikla athygli.

Í dag fór fram Gleðiganga Hinsegin daga og hafa margir lýst yfir opinberum stuðningi við hinsegin fólk í tilefni dagsins. Sindri Freyja segir að hán og eiginmaður sinn hafi farið snemma heim úr gleðinni og hafi verið að ganga heim þegar atvikið átti sér stað.

„Það voru semsagt fimm ungir menn sem að voru fyrir utan gamla heimilið okkar á Sæmundargötu sem tóku þá ákvörðun að það má bara drepa transfólk á götunni. En þeir hlupu í burtu áður en það var hægt að hringja á lögregluna þannig að það er ekkert hægt að gera í því,“ segir hán.

„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist á mjög stuttum tíma því að fyrir þremur vikum var strákur sem að kallaði okkur djöfla og hljóp á eftir okkur með hjólabretti sem hann notaði sem vopn. Þetta var daginn áður en það var málað yfir regnbogafánann. Svo er öskrað nánast mánaðarlega á mig eitthvað.“

Hér má sjá myndbandið í heild sinni:

Sindri Freyja, sem hefur kallað sig Sparkle, hefur áður rætt um bakslag í garð hinsegin fólks. Sagði Sindri Freyja í viðtali við RÚV í vor að eftir viðtal við Heimildina um sýningu sína Pláss fyrir alla, hafi komið inn 230 hatursathugasemdir eftir birtingu. Flestar þeirra sögðu að það væri ekkert bakslag að eiga sér stað. „Eins og það heyri ekki að þegar það eru 230 manns að segja að það sé ekkert bakslag. Þetta er bakslagið,“ sagði hán. „Það voru líka miklu ljótari hlutir þarna. Það var ein manneskja sem var endalaust að kommenta á allt sem ég sagði, aftur og aftur. Þetta var þekktur ofbeldismaður þannig við enduðum á því að fá öryggisvörð á hurðina. Svo framarlega sem ég veit þá hefur þetta ekki gerst áður, að það hafi þurft að fá dyravörð.“

Bakslagið sé raunverulegt. „Ég hef tvisvar sinnum næstum því verið barin á Laugaveginum. Það er öskrað á mig reglulega þegar ég labba um,“ sagði hán. „Ég finn fyrir þessu á skinni mínu svo mikið.“

Undanfarin tvö ár hafi hán fundið fyrir miklum breytingum.„Maður áttar sig ekkert endilega alltaf á því. Við erum fólk og þarna ertu kominn með þennan sýnileika. Ég er tveir metrar á hæð og ég er ekkert að fela að ég er trans. Ég er í rauninni bara labbandi regnbogafáni. Síðan sér fólk mig og stundum verða viðbrögðin bara stór.“

Fyrsta spurningin alltaf hvort þetta hafi verið Íslendingar

Í myndbandinu segir Sindri Freyja að hán hafi fyrst verið barið árið 2020. „Fyrsta spurningin sem ég fæ alltaf, hvert einasta skipti, er: Voru þetta Íslendingar? Og það skiptir ekki máli,“ segir hán. „Já, það eru til Íslendingar sem hata transfólk það mikið að þeir eru tilbúnir að gera eitthvað og maðurinn með hjólabrettið öskraði það bara nógu hátt. Ég hef eytt öllum ferlinum mínum í að segja þessar sögur og sannfæra fólk að fordómar eru til á Íslandi líka og ég get þetta ekki lengur.“

Sindri Freyja segir að þolinmæði sín sé búin: „Ég get ekki þóst að það sé allt í lagi með mig,“ segir hán. „Ef að þú segist standa með hinsegin fólki en trúir mér ekki þegar ég segi að við séum í hættu, þá máttu alveg eins pikka upp næsta stein og hætt að þykjast vera hvað þú ert.“