Fréttir

Oddur er farinn að hljóðrita samtöl sín við stofnanir: „Kerfið er því miður rotið að utan en einnig að innan“

Mynd
Samsett mynd/Getty

Oddur Thorarensen Stefánsson segir að hann hafi í áraraðir þurft að berjast fyrir þeim stuðningi sem hann telur sig eiga rétt á. Hefur hann tekið upp á því að hljóðrita samtöl við stofnanir sem hann á í samskiptum við.

„Ég er fatlaður einstaklingur og hef í mörg ár þurft að berjast fyrir þeim stuðningi sem mér finnst ég eiga rétt á samkvæmt lögum og þeim markmiðum sem íslenskt samfélag hefur sett sér um jafnrétti og sjálfstætt líf,“ segir hann í grein í Morgunblaðinu í dag.

„Reynsla mín af stjórnsýslunni hefur verið bæði löng og erfið. Í stað þess að upplifa skilning og lausnir hef ég oft fundið fyrir flóknum ferlum, löngum biðtíma og sífelldri óvissu. Þessi reynsla hefur haft áhrif á daglegt líf mitt og tekið mikinn tíma og orku sem hefði átt að fara í annað.“

Hefur hann því tekið upp á því að hljóðrita samtöl sín:

„Vegna þessa hef ég talið nauðsynlegt að hljóðrita símtöl mín við stjórnvöld og stofnanir sem ég hef átt samskipti við. Tilgangurinn hefur aldrei verið að gera lítið úr starfsfólki heldur að geta haldið nákvæma skrá yfir samskiptin, hvað var sagt og hvaða upplýsingar voru veittar. Þegar mál dragast á langinn skiptir máli að geta vísað til réttra upplýsinga.“

Vonast Oddur til þess að stjórnvöld hlusti betur á fólk sem þurfa á treysta á þjónustuna: „Enginn ætti að þurfa að verja árum í að sækja réttindi sín. Enginn ætti að þurfa að eyða ótal klukkustundum í símtöl, tölvupósta, kærur og endurteknar útskýringar til að fá úrlausn í sínu máli. Stuðningur á að vera aðgengilegur, fyrirsjáanlegur og byggjast á virðingu fyrir einstaklingnum,“ segir Oddur. „Þegar samfélag talar um jafnrétti verður það einnig að sýna það í verki. Það er kominn tími til að hlusta á raddir fatlaðs fólks og tryggja að réttindi þess séu virt í framkvæmd, ekki aðeins á pappír. Kerfið er því miður rotið að utan en einnig að innan, vegna innantómra loforða.“