Fréttir

Kallar eftir farbanni á alla tengda Ísraelsher – Rabbíninn á leið úr landi

Mynd

Rabbíninn Shmuley Boteach er á leið úr landi og sendir Íslendingum kaldar kveðjur eftir að hafa lent í ýmsum uppákomum sem varða umdeildar skoðanir hans á Ísrael. Hafa uppákomurnar orðið til þess að Jón Ferdínand Estherarson, formaður Sósíalistaflokksins, telur að kominn sé tími til að endurskoða ferðafrelsi og setja farbann á alla sem tengjast Ísraelsher.

„Þessi ógeðfelldi dólgur, stuðningsmaður þjóðarmorðs á börnum og ofbeldismaður heldur áfram að áreita fólk á Íslandi. Er ekki kominn tími til að endurskoða ferðafrelsi barnamorðingja og stuðningsmanna þeirra til Íslands?,“ spyr Jón Ferdínand í færslu á Facebook.

„Setjum viðskiptabann á Ísrael og algert farbann á alla aðila tengda Ísraelsher, eins og þennan mann og son hans sem er með honum í för og gegnir herþjónustu í hinum barnamyrðandi Ísraelsher.“

Líkt og fjallað var um í lok júlí kom Boteach hingað til lands til að gera heimildarmynd um landið og vill hann sérstaklega komast til botns í því hvers vegna margir á Íslandi eru á móti Ísrael. Boteach er mjög harður stuðningsmaður Ísraels og einnig Donald Trump Bandaríkjaforseta. Hefur Boteach komið Ísrael til varnar eftir gagnrýni á framgöngu Ísraela á Gaza. Synir hans börðust með Ísraelsher á Gaza, hefur Mendy sonur hans ferðast með honum hér á Íslandi.

Sjá einnig: Frægur rabbíni vinnur að heimildarmynd um Ísland

Segja má að heimsóknin hafi sprungið í loft upp þegar Boteach elti Samúel Guðmundsson og kærustu hans á Akureyri eftir að Samúel sagði að Ísrael mætti fara fjandans til. Fjallað var ítarlega um atvikið á Vísi þar sem einnig er rætt við Samúel. Myndskeiðið hefur farið víða um netheima þar sem flestir virðast vera á bandi Samúels. Ýmsar kenningar fóru á kreik um hvort rabbíninn væri í raun og veru að reyna að skilja afstöðu Íslendinga eða hvort hann væri frekar áhrifavaldur sem væri einungis að skapa úlfúð til að fá athygli á samfélagsmiðlum.

Þá fjallaði Mannlíf um uppákomu á bar á Laugavegi þar sem Boteach sagðist hafa verið áreittur. Í gærkvöldi birti rabbíninn svo myndband þar sem Íslendingur reynir að útskýra fyrir honum afstöðu sína.

„Fólki líkar kannski ekki við þig af því að þú styður Ísrael og það sér mikið af efni á samfélagsmiðlum um Ísraela sem eru hatursfullir gagnvart Palestínumönnum og þú ert að halda þeim skilaboðum á lofti,“ sagði hann við rabbínann. Boteach fór að útskýra fyrir honum að hann væri ekki Ísraeli heldur Bandaríkjamaður og að Íslendingar eigi að þakka Bandaríkjamönnum fyrir að hafa bjargað þeim frá nasistum í seinni heimstyrjöldinni. Nefndi hann ekki að Ísland var upphaflega hernumið af Bretum árið 1940 en ekki Bandaríkjamönnum. 

Boteach segir svo í öðru myndbandi að hann sé á leiðinni úr landi. „Það er búið að ráðast á mig mörgum sinnum vegna þess að fólk þekkir mig sem verndara Bandaríkjanna, mannréttinda og Ísraels í baráttunni við gyðingahatur og rasisma.“