Fréttir

Hanna Katrín segir réttindi hinsegin fólks pólitískan gjaldmiðil í höndum popúlista

Mynd
Hanna Katrín Friðriksson. Samsett mynd.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að barátta gegn hinsegin fólki, þá sérstaklega trans fólki, sé nátengd uppgangi skipulagðra öfgahreyfinga í heiminum sem ógna grundvallargildum lýðræðis. Hún segir í grein á Vísi nú í morgun að réttindi hinsegin fólks hafi orðið pólitískur gjaldmiðill í höndum popúlískra stjórnmálamanna. Í dag fer fram Gleðigangan þar sem hún ætlar að ganga með fjölskyldu sinni.

„Íslenskt samfélag hefur ekki farið varhluta af þeirri neikvæðu bylgju sem merkja má víðs vegar um heim í málefnum hinsegin fólks. Minni spámenn hafa uppgötvað að það er vís leið til stundarfrægðar að hafa uppi meiðandi umræðu um hinsegin fólk, gjarnan dulbúna sem almennar áhyggjur af velferð samfélagsins,“ segir Hanna Katrín. „Réttindi hinsegin fólks hafa þannig orðið pólitískur gjaldmiðill í höndum popúlískra stjórnmálamanna.“

Hún segir góða stöðu hinsegin fólks á Íslandi afrakstur þrotlausrar vinnu sem hafi kallað á erfiðar persónulegar fórnir margra. Íslensk stjórnvöld munu áfram standa vörð um mannréttindi hinsegin fólks.

„Baráttan gegn frelsi og réttindum hinsegin fólks – og um þessar mundir sérstaklega trans fólks - er nátengd uppgangi ýmiskonar skipulagðra öfgahreyfinga í heiminum sem ógna sjálfum grundvallargildum lýðræðisins: frelsi, jafnrétti og mannréttindum. Við getum ekki lokað augunum fyrir áhrifum þess,“ segir hún. 

„Við höfum sannarlega orðið vör við aukna neikvæða orðræðu, við höfum orðið vitni að skemmdarverkum á regnbogafánanum og hótunum um ofbeldisverk. En það er einmitt þegar skuggarnir hóta því að taka yfir sem gleðin og birtan er allra mikilvægust.“