Fréttir

Viggó sannfærður um að maðkur sé í mysunni þegar kemur að bið eftir skurðaðgerðum á Landspítalanum - „Manni er algjörlega misboðið“

Mynd
Viggó Sigurðsson

Viggó Sigurðsson fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í handbolta lýsir í opinni Facebook-færslu yfir verulegri óánægju með viðbrögð Landspítalans þegar hann leitaði eftir upplýsingum um hvar hann væri á biðlista eftir skurðaðgerð sem hann þarf nauðsynlega á að halda. Fátt hafi verið um svör og viðmótið hranalegt. Segist Viggó hafa sannfærst eftir þessa reynslu um að eitthvað bogið sé við röðun á biðlista á Landspítalanum og að þar ráði spilling ríkjum.

Viggó segist í færslunni hafa þurft vegna bakveiki að undirgangast fimm aðgerðir og bíði eftir þeirri sjöttu. Hann hafi beðið frá í janúar á þessu ári. Skurðlæknir hafi tjáð honum þegar hann hafi spurt út í biðina að hann þyrfti að hafa samband við svokallaða biðlistadeild Landspítalans.

Lýsir Viggó samtalinu við þann starfsmann sem varð fyrir svörum þegar hann hringdi í deildina. Miðað við lýsingar Viggós sagðist starfsmaðurinn, með nokkuð hranalegum hætti, ekki geta sagt til um hvenær Viggó kæmist í aðgerðina. Viggó segist hafa spurt númer hvað á biðlistanum hann væri en svarið hafi verið að það væru engin númer. Hann hafi spurt hverju það sætti en fengið það svar að það gætu komið upp bráðatilfelli. 

Segist Viggó loks hafa krafist þess að starfsmaðurinn gæfi upp hvenær hann mætti eiga von á að komast í aðgerðina en þá hafi svarið verið 3 ár og svo skellt á.

Landsliðsþjálfarinn fyrrverandi er ómyrkur í máli eftir þessa reynslu og virðist sannfærður um að maðkur sé í mysunni þegar kemur að röðun í aðgerðir á Landspítalanum og spyr hvernig hún fari fram:

„Maður sem þekkir mann. Fullyrði að hér er spilling. Ég fullyrði að þessi listi þolir ekki skoðun. Spítalinn hátæknisjúkrahús er með 170 milljarða á fjárlögum og hefur fengið 80 milljarða í aukafjárveitingu síðustu 10 ár. Manni er algjörlega misboðið.“