Maður á fimmtugsaldri var þann 5. ágúst úrskurðaður í framlengt gæsluvarðhald í fjórar vikur vegna rannsóknar á láti manns um sjötugt í heimahúsi í Salahverfi í Kópavogi sunnudaginn 26. júlí. Maðurinn var fyrst handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins þriðjudaginn 28. júlí en gæsluvarðhaldið var síðan framlengt.
Samkvæmt heimildum DV situr maðurinn í einangrun á Hólmsheiði.
Samkvæmt heimildum Vísis eru hinn grunaði og hinn látni feðgar. Hinn grunaði er sagður hafa glímt við andleg veikindi í langan tíma. Ekki liggur fyrir hvort hann á brotaferil að baki. Í málinu liggur fyrir sterkur grunur um að hann hafi banað föður sínum.
Agnes Eide Kristjánsdóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, tjáði Vísi að lögreglan sé komin með skýra mynd af málavöxtum og að um fjölskylduharmleik sé að ræða.
Ekki fannst vopn á vettvangi og er morðvopn ekki á meðal rannsóknargagna. Lögregla er sögð vera komin með skýra mynd af málavöxtum en verst frekari fregna af málinu þar sem það er álitið vera mjög viðkvæmt.