Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða yfir fiskveiðiauðlind Íslands og hverjar afleiðingar þess gætu orðið áður en kosið verður um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið (ESB).
Í nýrri greiningu SFS um áhrif aðildar á forræði Íslands yfir fiskveiðiauðlindinni kemur fram að velgengni íslensks sjávarútvegs byggist á yfirráðum yfir sjávarauðlindinni og markvissri fiskveiðistjórnun sem grundvallast á vísindum. Á þeim grunni hefur orðið til öflug atvinnugrein sem skapar verðmæti og fjölbreytt störf og styður við byggðafestu um land allt.
„Aðild að ESB yrði grundvallarbreyting á þessu fyrirkomulagi, enda fellur verndun lífrænna auðlinda hafsins undir óskiptar valdheimildir sambandsins samkvæmt sameiginlegri fiskveiðistefnu þess. Ísland hefði lítið vægi í ákvarðanatöku ESB og gæti ekki eitt og sér tryggt að niðurstöður tækju mið af íslenskum hagsmunum. Sagan sýnir jafnframt að formleg þátttaka innan ESB tryggir hvorki afgerandi áhrif né að hagsmunir einstakra ríkja ráði för.“
Í greiningunni kemur meðal annars fram:
- Við aðild myndu stofnanir ESB meðal annars ákveða leyfilegan heildarafla, skiptingu hans milli aðildarríkja og reglur um veiðarfæri og veiðitímabil. Sambandið færi jafnframt með samningsforræði gagnvart ríkjum utan ESB.
- Vægi Íslands í ákvarðanatöku ESB yrði á bilinu 0,09% til 3,57%, eftir því hvort miðað væri við íbúafjölda eða fjölda aðildarríkja. Þótt Ísland gæti haft áhrif á mótun sjávarútvegsmála er útilokað að það gæti eitt og sér tryggt að niðurstöður tækju mið af íslenskum hagsmunum.
- Nýlegur samningur ESB og Noregs sýnir hvernig eitt aðildarríki getur borið skarðan hlut frá borði þegar ólíkir hagsmunir eru samræmdir. Í samningi við ESB fengu Norðmenn aðgang að gjöfulum kolmunnamiðum á svæði sem er að mestu innan írskrar lögsögu, en hlutur Írlands í heimildunum sem komu til ESB í skiptum var aðeins 12%.
- Hagsmunir Íslands vegna sjávarútvegs eru miklir í öllum samanburði. Strandveiðipottur þorsks á Íslandi er til að mynda nærri fjórfalt stærri en allar þorskheimildir ESB-ríkja í Norðursjó.
- Verði aðildarviðræðum haldið áfram telja SFS nauðsynlegt að Ísland standi utan sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu ESB og haldi ákvörðunarvaldi og samningsforræði yfir fiskveiðiauðlindinni.
Greiningin hefst stuttlega á baráttunni fyrir fiskimiðunum.
„Íslenskur sjávarútvegur skapar nú mikil verðmæti, fjölbreytt störf, styður við byggðafestu um land allt og hefur verið drifkraftur nýsköpunar og tækniframfara. Þá sker hann sig úr í alþjóðlegum samanburði, meðal annars vegna þess að íslenskur sjávarútvegur er sá eini þar sem sértæk opinber gjöld standa undir opinberum kostnaði vegna greinarinnar, og gott betur “
SFS segir aðild að Evrópusambandinu (ESB) fela í sér grundvallarbreytingu á þeirri stöðu sem Íslendingar tryggðu sér með baráttunni um miðin í kringum Ísland og útfærslu landhelginnar. „Verndun sjávarauðlinda fellur undir óskiptar valdheimildir sambandsins innan sameiginlegrar fiskveiðistefnu ESB. Það þýðir að forræðið á auðlindinni sem vannst í þorskastríðum færi þar með úr okkar höndum. Aðildarríki ESB geta ekki hvert fyrir sig sett reglur á sviði sjávarauðlinda nema til þess komi sérstök heimild frá ESB. Á vettvangi ESB er meðal annars ákveðinn leyfilegur heildarafli einstakra stofna og skipting hans milli aðildarríkja, reglur um tæknilegar verndarráðstafanir, veiðitímabil og veiðarfæri.
Þá fer ESB einnig með forræði á samningum gagnvart utanaðkomandi ríkjum í málum sem falla undir sameiginlegu fiskveiðistefnuna. Ef Ísland væri hluti af ESB væru ákvarðanir sem nú eru teknar á Íslandi, með íslenska hagsmuni að leiðarljósi, teknar út frá hagsmunum ESB. Fram hjá því yrði ekki komist.“
Ísland yrði eitt fámennasta aðildarríki ESB ef til inngöngu kæmi. Ísland hefði sáralítið vægi í ákvarðanatöku sambandsins…„Vægi Íslands væri á bilinu 0,09% til 3,57%, eftir því hvort miðað væri við íbúafjölda eða fjölda aðildarríkja. Vægi Íslands yrði enn minna við áframhaldandi stækkun sambandsins.“
„Þótt Ísland gæti haft áhrif á mótun sjávarútvegsmála gæti ríkið ekki eitt og sér tryggt að niðurstöður tækju mið af íslenskum hagsmunum, þótt ríkir væru. Formleg þátttaka í ESB tryggir „sæti við borðið“ en því fer fjarri að því sæti fylgi sérstakt ákvörðunarvald.“
Höfum forræðið í fyrirrúmi
Í greininni segir að árangur Íslands í sjávarútvegsmálum byggist á því að þjóðin hefur sjálf farið með yfirráð yfir sjávarauðlindinni. „Á þeim grunni hafa ákvarðanir um fiskveiðistjórnun verið teknar og hagsmunir þjóðarinnar hafðir í fyrirrúmi. Það gildir hvort sem um ræðir ákvarðanir um heildarafla, verndun fiskistofna eða í samningum við erlend ríki. Þessi staða myndi gjörbreytast með aðild að ESB þar sem valdheimildir færast til stofnana þar sem vægi Íslands yrði lítið.
Sagan sýnir að formleg þátttaka innan ESB tryggir hvorki afgerandi áhrif né að hagsmunir einstakra ríkja ráði för. Fiskimið eins ríkis geta jafnvel orðið skiptimynt fyrir hagsmuni annarra ríkja. Fyrir hagsmuni Íslands felst veruleg áhætta í því að færa vald frá landinu í sameiginlegt kerfi þar sem vægi í ákvarðanatöku yrði takmarkað.“
Skýr skilyrði þurfa að liggja fyrir
SFS segir að aðild Íslands að ESB myndi færa mikilvægar valdheimildir til stofnana sambandsins, þar sem Ísland hefði lítið vægi og gæti ekki tryggt að ákvarðanir tækju mið af íslenskum hagsmunum.
„Ísland ætti því ekki að láta frá sér full og óskoruð yfirráð yfir auðlindum sjávar. Vegna þeirra yfirráða hafa Íslendingar byggt upp einn ábatasamasta sjávarútveg í heimi. Verði engu að síður kosið að halda áfram aðildarviðræðum er nauðsynlegt fyrir íslensk stjórnvöld að tryggja að:
- Ísland standi utan sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu ESB
- ákvörðunarvald um heildarafla, úthlutun aflaheimilda, aðgang að fiskimiðum og verndarráðstafanir verði í höndum Íslands
- Ísland fari með samningsforræði vegna deilistofna
- reglan um hlutfallslegan stöðugleika, hagstæða upphaflega úthlutun eða pólitísk fyrirheit komi ekki í stað varanlegra yfirráða yfir auðlindinni“