Fréttir

Segir myndband íslensks læknis ætlað að slá ryki í augu fólks og spyr hvort hún fari með þyrlu til vinnu: „Ég hef ALDREI haft það eins gott og síðan ég flutti til Svíþjóðar“

Mynd

Styrmir Barkarson, sem starfar sem grunnskólakennari í Svíþjóð og hefur gert í yfir áratug, segir myndband Kristínar Lilja Eyglóardóttur, sem starfar sem læknir í Svíþjóð, ætlað að reyna að slá ryki í augu fólks í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. 

„Umræðan um Evrópusambandið er svo víðáttuheimskuleg að stundum verkjar mig að fylgjast með henni!“ segir Styrmir.

Fyrir tveimur dögum, þann 5. ágúst, birti Kristín Lilja myndband, þar sem hún gagnrýndi gagnrýndi myndband samtakanna Já til að sjá þar sem Margrét Rós Sigurjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, fjallar um sænsku krónuna í tengslum við húsnæðislán. Sagði Kristín Lilja upplýsingaóreiðu ríkja um vexti í Svíþjóð. Hún starfar í fullu starfi á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð sem sérfræðingur í heila- og taugaskurðlækningum. Sagðist hún velta fyrir sér, eftir að hafa greint frá eigin launum, hvernig hún ætti að minnka við sig vinnu eða eyða peningum í annað.

Sjá einnig: SJÁ-Margrét gerir grín að mjólkurlítramistökunum - Fer aftur með rangt mál í nýju myndskeiði

„Hér talar læknir um það hvað hún á fjárhagslega bágt þrátt fyrir lága vexti. Hún nefnir launin sín (83 þúsund sænskar) og harmar svo að eiga bara 7-800 þúsund íslenskar krónur á mánuði sem hún getur greyið ekkert keypt sér fyrir,“ segir Styrmir með háði og heldur áfram: 

„Hún reynir að slá ryki í augun á ykkur með því að skipta á milli gjaldmiðils en það óheiðarlega er að hún nefnir þessar tölur án þess að gefa nokkuð samhengi um kaupmáttinn í landinu sem hún á svona bágt í.“

Rétt er að taka fram þegar hér er komið sögu að rangt var farið með í myndbandi SJÁ að sænska krónan væri tengd evru, það er hún ekki heldur fljótandi gjaldmiðill líkt og íslenska krónan. 

Það sem Kristín Lilja gleymir einnig að nefna í sínu myndbandi er að eiginmaður hennar í fjarbúð er Jens Garðar Helgason þingmaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, en Jens Garðar er á móti aðild Íslands að ESB.

 

Styrmir segir að líkt og Kristín Lilja starfi hann sem sérfræðingur, en þar sem hann er bara kennari er hann ekki einu sinni með helminginn af hennar tekjum. 

„Ég er með 40 þúsund sænskar krónur í laun á mánuði og hef í vasann sirka 30 þúsund eftir skatt. Af þessum tekjum greiði ég um 12 þúsund krónur á mánuði í húsnæðislán og húsfélag fyrir 170 fermetra raðhúsið sem ég bý í. Ég greiði 2500-4500 krónur fyrir rafmagn og hita (meira á veturna) og 900 krónur fyrir tryggingar á bæði húsi og bíl.“

Hann segir að ef hann byggi einn myndi hann ekki búa í stóru raðhúsi og reikningsdæmið líta öðruvísi út. 

„..en ég er svo heppinn að eiga konu sem líka vinnur og fær svipuð laun og ég. Þannig að þegar búið er að draga öll útgjöld heimilisins frá mínum launum með ca 8000 í afgang eigum við enn eftir hennar laun til að gera við eins og við viljum. Við gætum VEL minnkað við okkur vinnu en erum háð því að vinnuveitendurnir vilji skipta okkar sérfræðisviði milli tveggja starfsmanna og það gera þeir ógjarnan, en um leið og möguleikinn gefst stökkvum við á hann,“ segir Styrmir.

„Ég hef ALDREI haft það eins gott og síðan ég flutti til Svíþjóðar. Ég hef meiri tíma með fjölskyldunni og mun meiri ráðstöfunartekjur. Og að læknir sem er með tvöfaldar mínar tekjur dirfist að gapa á internetinu að það sé svo erfitt að lifa á sænsku laununum hennar (plús makans SEM ER ÞINGMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS) gerir mig hreint út sagt reiðan.

Ég veit ekki hvort Kristín Lilja fer með þyrlu í vinnuna eða borðar humar í öll mál, en fyrir okkur venjulega fólkið þá er lífið í Evrópusambandsríkinu Svíþjóð alveg hreint frábært.“

Býður Kristínu Lilju velkomna heim

Ljóst er að færsla Styrmis hefur vakið en yfir hundrað hafa deilt henni. Þar á meðal Birgir Örn Guðjónsson, deildarstjóri Blönduhlíðar í Skálatúni í Mosfellsbæ, stuðningsheimilis fyrir börn með fjölþættan vanda, sem lengi bar gælunafnið Biggi lögga.

„Þetta finnst mér geggjað svar frá íslenska kennaranum í Svíþjóð við ummælum greyið íslenska læknisins í Svíþjóð. Heja Sverige. Ps. Síðast þegar ég vissi þá er skortur á læknum á Íslandi, svo komdu endilega fagnandi aftur heim í þetta greinilega „mekka lækna“ íslenski læknir í Svíþjóð.“

Margir eru á því að Kristín Lilja hefði mátt geta um tengslin við eiginmanninn í myndbandi sínu eða færslu við það. 

Kristlaug M. Sigurðardóttir, Kikka, rithöfundur með meiru, deilir færslu Styrmis og er afar harðorð:

„Hér er eiginkona Jens Garðars Helgasonar, þingmanns, varaformanns Sjálfstæðisflokksins og sérlegs lobbýista Samherja og útgerðarinnar að kvarta yfir því að hún eigi ekki fyrir salti í grautinn. Manneskjan er sérfræðilæknir í Svíþjóð og með 83.000 Sek í mánaðalaun sem gerir tæp 1.1 milljón á gengi dagsins. Hún er örugglega með fleiri sposlur sem hún telur ekki til. Ég er að hugsa um að stofna til hópfjármögnunnar og koma henni heim úr þessu hræðilega ESB landi. Þessi manneskja þjáist að mikilli forréttindablindu og lygasýki. Öppdeit, svo virðist sem myndbandið hafi verið fjarlægt, enda full ástæða til fyrir forréttindaxxxxxx.“