Ída var hvolpafull tík af tegundinni „miniature pinscher“ sem dó hræðilegum dauðdaga á fimmtudagskvöld, hvolparnir sem hún gekk með dóu líka. Ræktandi Ídu, Vala Sif, sakar MAST og lögreglu um viðbragðsleysi því þessi aðilar hafi ekki brugðist við ítrekuðum tilkynningum og beiðnum hennar um að tíkin yrði fjarlægð úr hættulegum aðstæðum, að hennar sögn.
MAST segir í svari við fyrirspurn DV um málið að ábendingar um bráða hættu og alvarlega vanrækslu séu alltaf teknar til skoðunar en ljóst er að sú skoðun leiddi að þessu sinni ekki til nægilega hraðra viðbragða, að mati Völu Sifjar, sem telur að bjarga hefði mátt tíkinni og hvolpunum með skjótari viðbrögðum.
Vala Sif rekur sögunna í viðtali við DV:
„28. apríl 2022 fæðast fimm yndislegir miniature pinscher hvolpar undan tíkinni minni og rakkanum mínum á heimili mínu og dóttur minnar. Við vorum gjörsamlega í skýjunum og allt gekk eins og í sögu. En því miður kom upp úr staða síðar að finna þurfti nýtt heimili fyrir eina af tíkunum.“
Vala lét tíkina í hendur konu sem henni leist vel á en segir síðar hafa komist að raun um að stríði við fíkn og óreglu. Var þetta árið 2023 og allt gekk vel í fyrstu. En í fyrra fékk Vala þær upplýsingar að Ída væri hvolpafull, alveg óvart, að því er konan sagði. Skýrt hafði verið kveðið á um í samningi kvennanna að slíkt mætti ekki gerast án hennar vitneskju.
„Sex mánuðum síðar, nánar tiltekið um síðustu verslunarmannahelgi, fæ ég símhringingu þess efnis að tíkin sé aftur orðin hvolpafull og sé gengin einn mánuð af tveimur. Hún sé á flakki á milli neyslufélaga konunnar, sé illa haldin og þurfi að komast í öryggi. Mikil neysla hafi verið á heimilinu í langan tíma og hundarnir á víð og dreif hjá misæskilegum aðilum ásamt því að hennar heimili sé yfirfullt af dýraúrgangi og viðbjóði. Ég hef strax samband við konuna og bið hana um að afhenda mér hundinn en í samningnum milli ræktanda og kaupanda kemur einnig skýrt fram að ef kaupandi sjái sér ekki fært um að hugsa um dýrið fari það aftur til ræktanda. Ég fæ ekkert svar.“
Taugaskemmdir eftir slæma meðferð
Vala hafði samband við MAST og bað um aðstoð við að endurheimta tíkina, ekki síst þar sem hún væri hvolpafull. Hún hafði einnig samband við lögreglu sem vísaði á MAST og sagðist ekki geta gert neitt í málinu. Þetta var síðastliðinn sunnudag. Næstu daga á eftir reyndi hún að enduheimta tíkina af konunni sem var treg til að láta hana af hendi. Sagði að hún hefði verið á öðru heimili en hún væri búin að endurheimta hana núna og það væri í góðu lagi með hana. Vala staðhæfir að tíkin hafi verið í umsjá neyslufélaga konunnar.
„Á þriðja degi fæ ég enn engin svör frá MAST en konan samþykkir loksins að afhenda mér hundinn og ég held af stað heim til hennar, en hún meinar mér aðgang að heimili sínu, fellst hins vegar á að hitta mig fyrir utan dýraspítala.“
Vala segir að dýrið hafi verið í hræðilegu ástandi loksins þegar hún fékk hana í hendur. „Hún stóð varla í fæturna, titrar, kastar mikið upp, lyktar hræðilega og lítur bara mjög illa út. Ég spyr konuna hvað hafi komið fyrir hana en hún segir að hún sé bara með náladofa í fæti. Tíkinni snarversnar á stuttum tíma og ég fer með hana upp á Animalíu, bráðaþjónustu dýra. Í ljós kemur að hún er með mikil taugaskemmdareinkenni, líklega eftir slæma meðferð. Læknirinn sagði mér að hana gruni ofbeldi, eða að hún hafi innbyrt eitthvert eitur eða fíkniefni. Blóðprufur bentu til sýkingar. Tíkin liggur þungt haldin hjá þeim yfir nóttina, svarar engum lyfjameðferðum og henni versnar stöðugt.“
„Elsku Ída mín aflífuð“
„Ég fer niður á spítala og kíki á tíkina en hún lá bara og kvaldist. Ég skil við hana hágrátandi til að fara heim og elda kvöldmat en ég var nýkomin heim þegar hringt var í mig frá spítalanum og mér tilkynnt að það sé ekkert hægt að gera fyrir tíkina, hún sé með of alvarlega blóðsýkingu og að það þurfi að svæfa hana.“
„Fimmtudaginn 6. ágúst, klukkan 19:45, var elsku Ída mín aflífuð og fór til himnaríkis ásamt hvolpunum sínum. MAST hafði ekki einu sinni samband við mig eftir að ég bað um hjálp á sunnudeginum.“
„Núna er staðan sú að þessi kona er með fleiri tíkur í sinni umsjá (þar á meðal aðra hvolpafulla ) frá öðrum ræktendum sem halda áfram að vinna að því að fá hundana úr þessum aðstæðum og til sín. Núna er ein tíkin og hvolparnir hennar látin og það er alveg gjörsamlega óboðlegt að það hafi þurft það til að þeir fóru að taka þessu alvarlega, en mér skilst að héraðsdýralæknir sé nú í sambandi við hina ræktendurna og það sé verið að vinna í því að koma dýrunum aftur til ræktendanna.
Ég vil að þessi sorgarsaga hennar elsku Ídu minnar verði til þess að svona tilkynningar séu teknar alvarlega. Þetta hefði ekki þurft að enda svona hefði hundurinn verið fjarlægður strax og henni komið til læknis. Ég vona að MAST og lögreglan breyti sínum verkferlum en ég veit að ef um barn á heimili væri að ræða hefði verið gengið í málið strax. Ída var lifandi vera með tilfinningar og átti heila fjölskyldu hér sem vildi bjarga henni.“
Konan ber af sér sakir – „MAST voru bara að fara héðan“
DV hafði samband við konuna sem Ída var hjá og bar undir hana ásakanir Völu Sifjar.
„Ég veit ekki hvernig ég á að tjá mig, ég var ekki einu sinni með hundinn sjálf, hann var í pössun sko.“
Hún sagði ennfremur: „MAST voru bara að fara héðan.“
Sp. Var tíkin semsagt ekki hjá þér þegar var farið svona illa með hana?
„Ég vissi ekki einu sinni að það væri farið illa með hana. Ég sótti hana bara á sunnudaginn. Ég er bara að fá þær upplýsingar núna. Hjá MAST.“
Konan viðurkennir að hún hafi borið ábyrgð á tíkinni. „Jájá, ég bar ábyrgð á tíkinni hvort sem hún var hjá mér eða ekki.“
Hún segist ekki hafa haft hugmynd um fyrr en núna að málið hefði verið tilkynnt til MAST. „Það hefur aldrei verið haft samband við mig einu sinni.“
Konan kannast þó við að Vala Sif hafi sagt henni frá slæmu ástandi tíkurinnar en kannast ekki við að hún hafi tjáð henni að MAST væri komið í málið. Það kemur þó fram í textaskilaboðum frá Völu Sif til konunnar en það er atriði sem gæti hafa farið framhjá henni.
Hún segist hafa sýnt MAST myndbönd af tíkinni frá miðvikudagsmorgninum þar sem hún var í lagi. Segist hún líka hafa vitni að því að hundurinn hafi verið í góðu standi á miðvikudagsmorgninum. DV hefur séð stutt myndbönd frá Völu Sif sem sýna að hundurinn haltrar og á erfitt með að halda jafnvægi. Ekki er þó hægt að draga staðfestar ályktanir af ástandi hundsins út frá myndböndunum, ljóst er þó að eitthvað amar að dýrinu.
Almennt svar MAST
DV hafði samband við Einar Örn Thorlacius, lögfræðing MAST, sem féllst á að svara skriflegri fyrirspurn DV með almennum hætti. Svarið er eftirfarandi:
„Stofnunin tjáir sig ekki um einstök mál sem kunna að vera til meðferðar, meðal annars með hliðsjón af persónuvernd og rannsóknarhagsmunum. Stofnunin getur hins vegar veitt almennar upplýsingar um verklag við móttöku og úrvinnslu ábendinga um velferð dýra.
Rétt er að taka fram að ekki er starfrækt sérstök bakvakt á vegum Matvælastofnunar. Sú vaktþjónusta sem starfrækt er utan dagvinnutíma er sinnt af sjálfstætt starfandi dýralæknum á grundvelli reglugerðar nr. 406/2020 og er ætlað að tryggja velferð dýra og almenna þjónustu við dýraeigendur. Aðkoma Matvælastofnunar að þeirri þjónustu takmarkast við að halda utan um mönnun vaktanna en þjónustan er að öðru leyti ótengd eftirlitshlutverkum stofnunarinnar. Um er að ræða almenna dýralæknaþjónustu en ekki viðbragðsvakt vegna dýravelferðarmála.
Ábendingar um aðbúnað eða meðferð dýra þurfa að berast beint til Matvælastofnunar svo þær komist í réttan farveg. Það er hægt að gera með ýmsum hætti svo sem í gegnum ábendingagátt á vef stofnunarinnar, mast.is, eða símleiðis á opnunartíma. Öllum ábendingum er forgangsraðað eftir alvarleika og unnið úr þeim í samræmi við það. Ábendingar um bráða hættu eða alvarlega vanrækslu eru teknar til skoðunar án tafar.
Matvælastofnun tekur allar ábendingar um velferð dýra alvarlega og hvetur almenning til að koma slíkum ábendingum á framfæri við stofnunina eftir framangreindum leiðum.“