Fréttir

Fá ekki fjárhagsaðstoð við átta barna foreldri endurgreidda

Mynd
Hafnarfjörður myndin tengist fréttinni ekki beint.

Nýlega synjaði félagsmálaráðuneytið kröfu Hafnarfjarðarbæjar um endurgreiðslu fjárhagsaðstoðar sem bærinn veitti foreldri átta barna, um nokkurra mánaða skeið, en börnin komu hingað til lands á grundvelli fjölskyldusameiningar eftir að foreldrið fékk alþjóðlega vernd.

Vinnumálastofnun hafði synjað beiðni bæjarins um endurgreiðslu sem kærði þá niðurstöðu til ráðuneytisins.

Synjunin var raunar kærð fyrir tveimur árum, í maí 2024, og því hefur málið tekið nokkurn tíma í vinnslu í ráðuneytinu.

Foreldrið fékk alþjóðlega vernd á Íslandi í desember árið 2020 og börnin átta komu síðan til landsins á grundvelli fjölskyldusameiningar í febrúar 2023.

Á þeim tíma sá Fjölmenningarsetur um aðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd og aðra sem þeim tengdust en Vinnumálastofnun tók síðar við málaflokknum.

Hafnarfjarðarbær sagði í sinni kæru til félagsmálaráðuneytisins að Fjölmenningarsetur hefði veitt þau svör að fjárhagsaðstoðin félli undir leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um móttökuþjónustu og aðstoð við félagslega þátttöku flóttafólks. Svörin hefðu þar af leiðandi falið í sér að foreldrið hefði átt rétt á viðbótarstuðningi fyrstu tvö árin eftir að börnin komu til landsins. Upphæð aðstoðarinnar hafi numið barnabótum á hverjum tíma í samræmi við reglugerð um greiðslu barnabóta, fram að þeim tíma sem barnabætur áttu að greiðast að fullu frá ríkisskattstjóra.

Bærinn sagði að Vinnumálastofnun hefði hafnað því að endurgreiða þessa aðstoð sem foreldrið fékk, frá bænum, eftir að börnin komu til landsins, á þeim grundvelli að foreldrið hafi verið með lögheimili hér á landi í meira en tvö ár þegar bærinn veitti umrædda fjárhagsaðstoð.

Hálft ár

Í andsvörum Vinnumálastofnunar kom fram að Hafnarfjarðarbær hefði sótt um endurgreiðslu vegna aðstoðar við foreldrið, vegna komu barnanna, á tímabilinu mars og fram í september 2023, alls hálft ár. Stofnunin sagði að þótt börnin hefðu á því tímabili átt lögheimili á Íslandi í minna en tvö ár hafi það ekki átt við um foreldrið. Heimild stofnunarinnar til að endurgreiða bænum þessa fjárhagsaðstoð við foreldrið hafi þar af leiðandi verið fallin niður, samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Bærinn vildi hins vegar meina að leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um móttökuþjónustu og aðstoð við félagslega þátttöku flóttafólks væru ekki skýrar hvað varðaði tilfelli af þessu tagi. Þess vegna ætti að túlka ákvæði umræddra laga viðkomandi einstaklingi í hag og veita honum viðbótarstuðning. Vildi bærinn jafnframt meina að málið sneri að jafnræði.

Vinnumálstofnun sagði hins vegar reglurnar vera skýrar. Foreldri sem hefði stöðu flóttamanns ætti rétt á styrk sem samsvaraði barnabótagreiðslum fyrstu tvö árin eftir lögheimilisskráningu á Íslandi. Það væri engin heimild í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga til þess að víkja frá þessu. Vísaði stofnunin því á bug að hafa veitt Hafnarfjarðarbæ þeir leiðbeiningar að hann ætti rétt á endurgreiðslu þessarar fjárhagsaðstoðar við foreldrið.

Félagsmálaráðuneytið tekur heilshugar undir með Vinnumálastofnun í niðurstöðu sinni. Umrædd lög séu skýr sveitarfélög eigi ekki rétt á endurgreiðslu frá ríkinu vegna fjárhagsaðstoðar við erlenda ríkisborgara sem hafi átt lögheimili á Íslandi í meira en tvö ár. Þar af leiðandi sé ekki til staðar lagaheimild fyrir því að Hafnarfjarðarbær fái endurgreidda þessa fjárhagsaðstoð sem foreldrinu var veitt í hálft ár vegna komu barnanna átta til landsins.