Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra, er komin með nýtt starf.
Mun hún leiða nýtt gervigreindarverkefni Fenris Creation (áður CCP Games) í London. Áslaug Arna hefur þegar tekið til starfa og mun flytja til London í september þar sem hún verður með starfsstöð.
„Ég hef tekið til starfa hjá Fenris Creation í London (áður CCP Games), þar sem ég leiði nýtt gervigreindarverkefni fyrirtækisins (Senior Director of AI Partner Program).
Um er að ræða eitt mest spennandi verkefni samtímans á sviði gervigreindar. Verkefnið snýst um hvernig samfélag okkar og hagkerfi mun breytast með áframhaldandi þróun gervigreindar, en á vettvangi Fenris eru einstök tækifæri til að prófa slíkar sviðsmyndir í öruggu umhverfi í nokkurs konar sýndarveruleika. Sjálfstæð gervigreindarkerfi (autonomus AI agents) eru að færast inn í raunhagkerfið, en það vantar prófunarvettvang til að við raunverulega vitum hvernig kerfin aðlagast mannfólki og athafna sig í hagkerfinu,“
segir Áslaug Arna í færslu þar sem hún greinir frá nýja starfinu.
Ýmsar spekulasjónir voru um hvað hún tæki sér fyrir hendur eftir að sneri heim í vor eftir framhaldsnám í New York og sagði af sér þingmennsku á fundi Alþingis 3. Júní.
Sjá einnig: Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Í færslu sinni segir Áslaug Arna frá tilkomu leiks CCP Games sem breytti leiknum, hvað tölvuleikjavarðar:
„Á Íslandi fyrir 23 árum var byggður heimur í leiknum EVE Online, sem hefur lifað og þróast alla tíð síðan með eigin hagkerfi, mörkuðum, bandalögum og öðrum mannlegum þáttum, mótaður af hundruðum þúsunda einstaklinga. Ólíkt leikjum á borð við skák eða Go (sem hafa verið notaðir við þjálfun gervigreindarlíkana) lýkur leiknum aldrei, mistök standa, skuldir lifa og orðspor fylgir eins og í raunveruleikanum. Það gerir hann að einum fárra staða í heiminum þar sem hægt er að prófa hvort sjálfstæðum kerfum sé treystandi innan um fólk í öruggu umhverfi áður en við komumst að því í hagkerfinu og samfélaginu sem við reiðum okkur öll á.
Nýleg dæmi sýna að prófanir af þessu tagi geta orðið grundvallaratriði þegar kemur að áreiðanleika og trausti slíkra kerfa til framtíðar.“
Starf Áslaugar Örnu næstu mánuði mun felast í að stýra uppbyggingu þessa nýja vettvangs hjá Fenris.
„Markmiðið er að byggja stað sem er raunverulega hlutlaus og rannsóknarstofur, stjórnvöld, fyrirtæki og leikmannasamfélagið sjálft geta reitt sig á til að svara stórum spurningum um framtíðina og ábyrga notkun gervigreindar. Á mannamáli er hægt að segja að vettvangurinn gæti orðið flughermir til æfinga fyrir gervigreindarkerfi, líkt og notað er fyrir flugmenn áður en við treystum þeim fyrir raunverulegum lífi og limum yfir heimsins höfum.“
Áslaug Arna segist að lokum hlakka til að vinna með Hilmari Veigari og frábæru samstarfsfólki hjá Fenris, „ég verð með starfsstöð í London og hyggst flytja í september, en ég hef þegar hafið störf.“