Á dögunum undirrituðu Bóksala stúdenta og Viska stéttarfélag samstarfssamning sem felur í sér að Viska niðurgreiðir námsbækur um 25% fyrir alla háskólanema sem eru skráðir í Visku stúdent. Viska stúdent er gjaldfrjáls þjónustuleið fyrir alla háskólanema á aldrinum 18 til 35 ára.
Samstarf af þessu tagi er nýtt af nálinni og á sér enga fyrirmynd hér á landi. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins skólaárs og verður afslátturinn til að byrja með einungis í boði í verslun Bóksölu stúdenta í Háskóla Íslands frá 15. ágúst til og með 30. september gegn framvísun félagaskírteinis Visku stúdent. Á samningstímanum verður jafnframt skoðaður sá möguleiki að afslátturinn gildi einnig í netverslun Bóksölunnar frá og með næsta skólaári. Samningsaðilar eru spenntir fyrir samstarfinu og hlakka til að sjá hvernig háskólanemar taka þessari nýjung.
„Við hjá Bóksölu stúdenta tókum strax vel í það þegar Viska nálgaðist okkur með þessa hugmynd. Þótt Bóksalan sé ekki rekin í hagnaðarskyni og álagningu á námsbækur sé haldið í algjöru lágmarki vitum við að kostnaður við bókakaup getur verið íþyngjandi fyrir háskólanema. Hver man ekki eftir því að vera ungur og blankur í háskólanámi? Við vonum því að samstarfið við Visku auðveldi háskólanemum að kaupa námsbækur. Við erum spenntar að sjá hvernig nemendur taka í þetta,“ segja Halldóra Lena Christians verslunarstjóri Bóksölunnar og Heiður Anna Helgadóttir framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta.
Gauti Skúlason, verkefnastjóri samskipta- og markaðsmála hjá Visku, tekur undir þetta og segir: „Við hjá Visku erum gífurlega spennt fyrir þessu verkefni. Það er liður í að stækka og þróa Viska stúdent, sem var sett á laggirnar samhliða stofnun Visku þann 1. janúar 2024. Það kostar háskólanema ekkert að skrá sig í Visku stúdent og með skráningu fá þeir ekki aðeins 25% afslátt af námsbókum hjá Bóksölu stúdenta heldur einnig aðstoð við að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og ókeypis tryggingar fyrir raftæki, gleraugu og fleira. Með þessu viljum við halda áfram að sýna í verki að háskólanemar skipta máli og tryggja þeim enn betri stuðning frá okkur í Visku.“