Fréttir

Reykjavíkurhöfn fyrst íslenskra hafna tilnefnd til World Cruise Awards

Mynd

Vör, ný farþegamiðstöð Faxaflóahafna í Reykjavíkurhöfn, hefur verið tilnefnd til World Cruise Awards sem besta farþegamiðstöð skemmtiferðaskipa í Evrópu árið 2026 (Europe’s Best Cruise Terminal 2026.) Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk höfn eða farþegamiðstöð hlýtur tilnefningu til verðlaunanna.

World Cruise Awards eru alþjóðleg verðlaun sem veitt eru árlega til að viðurkenna framúrskarandi árangur og nýsköpun innan skemmtiferðaskipageirans. Verðlaunin eru nú veitt í sjötta sinn og geta bæði fagfólk innan greinarinnar og almenningur tekið þátt í kosningunni.

Vör er tilnefnd ásamt fjórtán rótgrónum skemmtiferðaskipahöfnum í Evrópu og má þar nefna Amsterdam, Barcelona, Civitavecchia við Róm, Lissabon, Mónakó, Málaga og Valletta á Möltu.

Tilnefningin skipar þannig Vör og Reykjavíkurhöfn í hóp með nokkrum af þekktustu og reynslumestu skemmtiferðaskipahöfnum Evrópu. 

Mynd

Mikilvæg viðurkenning fyrir Reykjavík og Ísland

Vör er fyrsta sérbyggða farþegamiðstöð skemmtiferðaskipa hérlendis. Hún var formlega opnuð í lok maí og leysir af hólmi tímabundna tjaldaaðstöðu sem áður var notuð til að taka á móti farþegum til og frá Reykjavík.

Í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum kemur fram að starfsfólk líti á tilnefninguna sem mikilvæga viðurkenningu á Vör og þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Reykjavíkurhöfn. Tilnefningin endurspegli jafnframt markvisst starf undanfarinna ára og áratuga við að efla Reykjavík og Ísland sem áfangastað erlendra ferðamanna sem koma hingað með skemmtiferðaskipum eða hefja siglingu sína hér á landi.

Farþegamiðstöðin stórbætir aðstöðu fyrir farþega, áhafnir og samstarfsaðila og styður við markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega, þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf.

Mynd

Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, fær Vör annað hlutverk sem miðstöð mannamóta og viðburða. 

Mynd

Kosning stendur til 21. ágúst

Kosning á vef World Cruise Awards er hafin og stendur til 21. ágúst 2026. Bæði almenningur og fagfólk innan ferða- og skemmtiferðaskipageirans getur kosið.

Hægt er að kjósa Vör – Reykjavík Cruise Terminal hér

Úrslit World Cruise Awards 2026 verða kynnt 14. október.