Fréttir

Níels varð vitni að ljótu atviki í morgun og hafði samband við lögregluna

Mynd
Mynd: Facebook

Níels Bjarki Finsen varð vitni að því í morgun (fimmtudagsmorgun), á gatnamótum við Smáralind, að bíll fór yfir á strætóakrein, hægra megin við raðirnar sem biðu á rauðu ljósi, þaðan síðan yfir á rauðu ljósi og hafnaði á hjólreiðamanni sem fór þvert yfir á grænu ljósi. 

Níels birti meðfylgjandi mynd í Facebook-hópi en einnig aðra mynd sem sýnir bílinn farinn yfir á rauðu ljósi og lentan á hjólareiðamanninum (sem sést afar ógreinilega og er óþekkjanlegur á myndinni). 

Níels bendir á að það þurfi líka að vera vakandi í umferðinni á grænu ljósi. Hann skrifar síðan: „Bíll reyndi að komast framfyrir í röð á rauðu ljósi með því að fara strætóleið og ók þá utan í hjólreiðamann.“

Myndirnar sem um ræðir eru skjáskot úr mælaborðsmyndavélinni í bíl Níels. Hann segir í samtali við DV að rétt áður en hjólreiðamaðurinn fór yfir hafi gangandi vegfarandi farið sömu leið: 

„Hann skellti sér á rauðu ljósi á strætóleiðina. Hann fór hægra megin við röðina sem var að bíða á rauðu ljósi, það er semsagt strætóleið þarna hægra megin, og það var gangandi vegfarandi nýbúinn að fara yfir þegar hjólið kemur. Hann hefði getað hitt hann líka.“

Hann segir að ökumaðurinn hafi náð að hægja nokkuð á sér áður en hann lenti á hjólreiðamanninum. Óvíst sé hins vegar um meiðsli hjólreiðamannsins. Hann segist hafa beðið dálitla stund eftir slysið en síðan ákveðið að fara burtu þar sem nægilega margir voru til að hlúa að hinu slasaða:

„Við biðum nokkur þarna áfram, ég fór ekki strax yfir þegar græna ljósið kom. Ég fór út úr bílnum og sá þá að það voru komnir fjórir til þess að hjálpa þessum manni og hann labbaði sjálfur út af götunni, þá vissi ég að mér var óhætt að fara. En ég veit að það varð annar árekstur þarna rétt á eftir út af þessu atviki.“

Níels hafði samband við lögreglu rétt eftir atvikið og greindi frá því sem hafði gerst. Greindi hann lögreglu jafnframt frá þeim gögnum sem hann hefur undir höndum, þ.e. myndefninu úr mælaborðsmyndavélinni. 

Uppfært kl. 18:10

Greint er frá atvikinu í dagbók lögreglu sem var að berast fjölmiðlum. Þar segir: „Umferðaróhapp í hverfi 201. Ekið á hjólreiðamann, óveruleg meiðsli.“