Fréttir

Mannlegur harmleikur í Salahverfinu – Sonurinn lengi glímt við andleg veikindi

Mynd

Maður á fimmtugsaldri er í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið föður sínum á sjötugsaldri að bana í Salahverfinu í Kópavogi. Faðirinn fannst látinn sunnudaginn 26. júlí og var sonurinn handtekinn þriðjudaginn 28. júlí.

Samkvæmt heimildum DV er maðurinn vistaður í einangrun á Hólmsheiði. Í frétt Vísis um málið segir að maðurinn hafi glímt lengi við andleg veikindi. 

Agnes Eide Kristjánsdóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði að um mannlegan harmleik sé að ræða.