„Þarna er farið yfir ákveðið strik, þetta hefur aldrei gerst áður,“ segir Bjartmar Leósson, sem þekktur er fyrir baráttu sína gegn þjófnuðum og eljusemi og útsjónarsemi við að enduheimta þýfi og koma í hendur eigenda sinna, ekki síst reiðhjólum, í samtali við DV. Maður sem hefur horn í síðu Bjartmars vegna þessarar baráttu, vatt sér að honum fyrir utan mathöllina á Hlemmtorgi í gærkvöld og rak honum bylmingshögg í hnakkann.
Bjartmari varð ekki meint af högginu en er hugsi yfir atvikinu. „Í sjö ár hef ég staðið í þessu og þetta hefur aldrei gerst áður. Mér hefur vissulega verið hótað en þetta eru ákveðin tímamót.“
Bjartmar hefur verið ómyrkur í máli á samfélagsmiðlum í umfjöllun um þjófnaði, ástand sem hefur farið stigmagnandi og sjaldan verið alvarlegra en í sumar, þar sem hrina innbrota hefur gengið yfir sum hverfi borgarinnar. Margir þeirra sem stela og brjótast inn stríða við fíkn og Bjartmar segir að sumir kjósi að túlka baráttu hans sem andúð í garð þeirra. En því fari fjarri.
„Ég hata syndina en ekki syndarann. Ekkert gleður mig meira en þegar ég hitti fólk sem ég átti í útstöðum við áður vegna þjófnaðarmála en hefur núna náð bata frá fíkn og hefur hætt afbrotum. Það er yndislegt þegar slíkir félagar heilsa upp á mig og sumir hjálpa til í baráttunni.“ – Í þessu samhengi víkur hann orðinu að manninum sem réðst á hann í gærkvöld og segir: „Ég vona innilega að þessi maður nái bata.“
Gott að finna stuðning í baklandinu
Bjartmar greinir frá atvikinu í Facebook-hópnum þekkta, Hjóladót, og þar merkir hann Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og Hildi Björnsdóttur borgarstjóra og kallar eftir aðgerðum gegn þjófnuðum í borginni. Hann segir við DV: „Þær vita að þær tóku við erfiðum pakka en þess vegna mega þær líka eiga von á þrýstingi.“
Færsla Bjartmars er eftirfarandi:
„Jæja, þá er aðeins farið að hitna í kolunum. Fékk eitt svona högg áðan frá góðkunningja sem er ansi duglegur við að stela svo gott sem öllu sem á vegi hans verður. Það er einhver spenna í loftinu greinilega. Annar hefur svo hótað að berja mig með járnröri næst þegar hann sér mig.
Geri mér fulla grein fyrir því að auðvitað getur þetta gerst þótt ég reyni eftir fremsta megni að vinna friðsamlega í því sem ég geri. Skrítið að segja þetta en ég kalla það nú bara "nokkuð gott" að þetta sé fyrsta höggið eftir 7 ára vinnu í þessum málum.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Hildur Björnsdóttir, ég geri mér fulla grein fyrir því að þið tókuð við erfiðum verkefnum. En ástandið hérna er fyrir löngu orðið rauðglóandi þegar kemur að þjófnuðum í borginni. Og mér finnst það frekar erfið hugsun að ég hafi einn þurft að standa í skarðinu allan þennan tíma. Nú þarf heldur betur að bretta upp ermarnar og ná stjórn á borginni.“
Færslan hefur fengið mikil viðbrögð og Bjartmar segir við DV að honum þyki gott að vita af þessu baklandi sínu. Þegar á reynir, eins og núna, sé gott að finna samhuginn frá þeim mörgu sem styðja baráttu hans.