Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir að því meiri umræða sem verði um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst, því meira verði almenningur fráhverfari hugmyndinni.
„Hvaða hugmynd er það? Að klofinni og brothættri ríkisstjórn, sem vill ekki nema að hluta til ganga í Evrópusambandið, sé veitt umboð sem hún fékk ekki í almennum kosningum til þess að senda sitjandi utanríkisráðherra til Brussel til að semja um grundvallarmál okkar Íslendinga til allrar framtíðar,“ segir Snorri í færslu á Facebook.
„Vondar hugmyndir þola illa efnislega umræðu og ætli þetta sé ekki ágætt dæmi um einmitt það, vonda hugmynd.“
Vitnar í Göbbels
Færsla Snorra hefur vakið mikla athygli, vekur einnig athygli að leikhúsgagnrýndandinn þjóðþekkti Jón Viðar Jónsson hjólar í Snorra og vitnar í sjálfan Jósef Göbbels, áróðursstjóra nasista:
„Göbbels mun hafa sagt að undirstaða áróðurslistarinnar væri að hamra nógu lengi, nógu hátt og mikið, á sömu lyginni. Það hafið þið Miðflokksmenn augljóslega lært af honum og aðrir af ykkar sauðarhúsi,“ segir Jón Viðar,
„Þið tönnlist endalaust á því að þjóðin verði í reynd komin inn í ESB um leið og sest er að samningaborði - sem er og verður hrein og klár lygi. Margítrekaðar fullyrðingar ráðamanna um að samningur verði fortakslaust lagður fyrir þjóðina segið þið ekkert að marka. Þar með eruð þið teknir að höggva beint að rótum lýðræðisins, því trausti sem á og verður að ríkja milli þjóðar og þegna í samfélagi á borð við okkar.“
Jón Viðar er þó ekki fráhverfur Miðflokknum að öllu leyti:
„Mér hefur fallið vel sú áhersla sem Miðflokkurinn hefur lagt á endurreisn þjóðlegra gilda og eins andóf við vók-ruglið sem hin kommúníska kúlturmafía sem hér hefur mikil umsvif, kyndir leynt og ljóst undir. En það skiptir litlu samanborið við þjónkun ykkar við þau hulduöfl (sem við vitum þó öll hver eru) sem mega ekki hugsa til þess að hagur þjóðarinnar batni í samstarfi við þær þjóðir heims sem hafa deilt menningu okkar og lífsgildum um aldaraðir,“ segir Jón Viðar.
„Þið viljið að við einangrumst frá þeim og föllumst í faðm við bandarískan fasistaleiðtoga. Þið eruð ömurlegur blettur á íslenskri stjórnmálamenningu, svo menningarleg sem hún nú er, og engin furða þó að kjósendur séu teknir að snúa við ykkur baki. Það er heit ósk mín og fjölda annarra að þeir séu nógu vel upplýstir til að sjá í gegnum moldviðrið sem þið þyrlið nú upp nótt sem nýtan dag.“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, svarar Jóni Viðari með spurningu:
„ Hvernig ætti hagur þjóðarinnar að batna við að fara úr EES í ESB? Við höfum þegar notið alls þess efnahagslega ávinnings, sem er af því að vera á innri markaði Evrópu og stunda þar frjáls viðskipti. Munurinn á EES og ESB er, að í EES eru löggjafarvald og dómsvald enn á okkar höndum (og ef ágreiningur verður, þá sker EFTA-dómstóllinn úr) og við höfum yfirráð yfir sjávarútvegi, landbúnaði, utanríkisviðskiptum og peningamálum. Hvernig myndi hagur okkar batna við að láta þetta allt í hendur ESB, lögggjafarvald, dómsvald, sjávarútveg, landbúnað, utanríkisviðskipti og peningamál? Geturðu útskýrt það?“