Jón Heiðar Gunnarsson var nýkominn í sumarfrí þegar hann sat úti á pallinum með börn að leik í kringum sig. „Stuttu síðar greip ég ósjálfrátt símann og fór að fletta fréttum og samfélagsmiðlum, kíkti líka á póstinn. Tíminn leið allt í einu mjög hratt og þegar ég leit upp tók ég eftir því að þögn ríkti allt um kring, börnin höfðu líka gripið í símana sína. Fyrir örfáum mínútum höfðu þau verið að leika sér. Þá rann upp fyrir mér að ég hafði líklega gefið tóninn – án þess að segja eitt einasta orð,“ segir Jón Heiðar, sem er reyndar markaðsstjóri Forlagsins, í grein á Vísi.
Mikið hefur verið rætt um skjátíma barna undanfarin misseri en Jón Heiðar kemur með áhugaverðan vinkil inn í þá umræðu að mögulega þyrfti ekki fleiri reglur um skjátíma heldur fleiri fullorðna sem sjást lesa bækur. Hægt er að finna reglur um skjátíma á Heilsuveru, vef Umboðsmanns barna og fleiri stöðum.
„Ef börnin okkar taka svona auðveldlega upp skjávenjur okkar, hvers vegna skyldu þau þá ekki líka taka upp lestrarvenjur okkar? Á hverju ári ræðum við um lesskilning, læsi og skjátíma. Við höfum áhyggjur af því að börn lesi minna en áður og veltum fyrir okkur hvernig megi snúa þeirri þróun við. En kannski byrjar lausnin nær okkur sjálfum en við höldum,“ segir Jón Heiðar.
„Þetta snýst ekki um að skjáir séu vondir. Þeir eru orðnir ómissandi hluti af lífi okkar. En eins og með svo margt annað snýst þetta um jafnvægi. Kannski þurfum við ekki fleiri reglur um skjátíma. Kannski þurfum við einfaldlega fleiri fullorðna sem sjást lesa.“