Mikið hefur kveðið að innbrotum að undanförnu í Bríetartún 9-11. Að sögn íbúa í er talið að innbrotsþjófar hafi brotið sér leið í gegnum bílakjallarann á Höfðatorgi, þann hluta hans sem snýr að Katrínartúni.
Kona sem býr ásamt eiginmanni og barni í Bríetartúni 11 segir að fólk í harðri neyslu haldi til í þessum hluta bílakjallarans. „Fólkið heldur til þarna í ganginum, í stigunum og í opnum rýmum, bæði á nóttunni og yfir daginn. Þau neyta áfengis, sprauta sig og guð má vita hvað þau taka inn. Gangarnir lykta illa, eru óhreinir og þarna gerast slæmir hlutir,“ segir hún.
Hún hefur sérstakar áhyggjur af því að unglingar niður í 15 ára, jafnt stelpur sem strákar, safnast saman í nágrenninu á kvöldin, þar sem þau geta lent í samneyti við fólk í harðri neyslu, og mögulega hættulega einstaklinga:
„Versti staðurinn er inngangurinn og stiginn sem liggja frá Skattinum og niður í bílakjallarann. Þangað fer alls konar fólk og bílakjallarinn er orðinn mjög óöruggur. Það er ekki stök eftirlitsmyndavél í þessum hluta bílakjallarans né í inngöngunum. Það eru allt of margir opnir inngangar þannig að allir geta komist inn hvenær sem er. Ég tel að þetta sé ekki góður staður fyrir unglinga og vil vekja athygli á því, vegna þess að þessir krakkar eru mjög ungir.“
Blóð og sprautur á gólfinu
Konan segir að unglingarnir komi oft saman á leikvelli í bakgarði við Bríetartún 9-11. Eitt kvöldið fyrir skömmu ríkti þar nokkur glundvoði:
„Móðir eins þeirra kom til að sækja son sinn, og var að rífast, öskra og gráta vegna þess að hinir unglingarnir yfirgnæfðu hana. Maðurinn minn fór að glugganum og bað þau um að fara í burtu. Síðan fórum við niður og í bílageymsluna. Þar sáum við blóð á góllfinu, og sprautur og nálar. Þetta gerist mjög oft og þessi bílageymsla er uppspretta mikilla vandamála. Við erum farin að hafa miklar áhyggjur af ástandinu.“
Hún ítrekar að engin eftirlitsmyndavél sé í þessari bílageymslu. „Á þriggja daga tímabili var tvisvar farið inn í húsið úr bílageymslunni auk þess sem brotist var inn í bíla,“ segir hún ennfremur og bendir á að ástandið hafi verið slæmt árum saman. Sjálf geymi þau ekki lengur bílinn inni í bílageymslunni:
„Við áttum stæði í bílageymslunni en fyrir fimm árum var brotist þrisvar inn í jeppann okkar. Lögreglan kom en fann aldrei sökudólgana. En semsagt, síðastliðin fimm ár höfum við geymt bílinn úti til að geta fylgst honum út um gluggann.“
Konan segir að ástandið sé sérstaklega óþægilegt í ljósi þess að þau eru með barn á heimilinu. Hún kallar eftir því að yfirvöld veiti þessum stað meiri athygli og að það verði komið fyrir öryggismyndavélum í þessum hluta bílakjallarans.
Dagleg ummerki um harða fíkniefnaneyslu
„Í dag sátu tvær stúlkur á milli tveggja bíla í bílastæðahúsinu og voru að sprauta sig með fíkniefnum, og fólk sá það. Mér finnst hlutirnir virkilega vera komnir á slæman stað,“ segir íbúinn ennfremur, nokkrum dögum eftir að hún ræddi áður við blaðamann. Hún sendi jafnframt myndir af ummerkjum um fíkniefnaneyslu í kjallaranum, en slík ummerki eru nánast dagleg sjón.
Lögregla með mál til rannsóknar
DV sendi svohljóðandi fyrirspurn til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í vikunni:
„Kannast lögregla við tíð innbrot, bæði á undanförnum dögum og vikum, sem og almennt á undanförnum árum, í húsnæði í gegnum bílakjallarann við Höfðatorg?
Kannast lögregla jafnframt við að fíkniefnaneytendur haldi til á svæðinu og stundi fíkniefnaneyslu?
Skortir öryggismyndavélar á hluta af svæðinu?“
Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri á lögreglustöð 1, svaraði fyrirspurninni með eftirfarandi hætti:
„Lögregla getur staðfest að það séu mál til rannsóknar sem snúa að m.a. að bílakjallara á Höfðatorgi sem hafa komið fram á síðustu vikum. Hvort þetta hafi átt sér stað á síðustu árum er ekki unnt að segja til um að sinni en það þarf að leggja í mikla vinnu til að finna út úr því.
Hvort það hafi verið farið inn í húsnæði úr bílakjallara hússins er ekki unnt að svara að svo stöddu enda ekki ljóst.
Aðilar hafa vanið komur sínar í bílakjallara hússins sem er mjög stór. Þá er ekki eingöngu átt við aðila sem eru háðir ávanabindandi efnum. Tilgangur getur verið annar í einhverjum öðrum tilfellum s.s. bara að hittast reglulega og spjalla sem dæmi. Aðgengi að kjallaranum er óheft frá Katrínartúni. Hvort það vanti myndavélar á svæðið getur lögregla ekki upplýst um enda er það ekki á hennar forræði að hafa umsjón með því heldur eiganda hússins.“