Árni Logi Sigurbjörnsson, meindýraeyðir í Víðihlíð í Öxarfirði, hafði samband við DV og benti á að samskonar gildrum hafi verið beitt við föngun minka sem sleppt var úr Dalsbúi í Mosfellsdal á dögunum og hann var fyrr í sumar dæmdur fyrir að nota.
Þann 24. júní síðastliðinn var Árni Logi sakfelldur fyrir brot lögum um vernd og friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Brot Árna fólst í því að hafa beitt svokölluðum lífgildrum við föngun minka sem hann síðan aflífaði eftir að þeir voru komnir í búrið. Árni segist sjálfur hafa flutt inn slíkar gildrur frá árinu 1979 og aldrei fengið athugasemdir við notkun þeirra enda sé um mannúðlega föngun að ræða því dýrin sakar ekki í búrinu. Breyting var hins vegar gerð á lögunum árið 1994 sem felur í sér að notkun þessara gildra er óleyfileg nema gegn undanþágu.
Var Árni Logi dæmdur í 50 þúsund króna sekt eða fangelsi í fjóra daga, yrði sektin ekki greidd. Árni Logi er afar ósáttur við dóminn, enda hafi hann ekki haft hugmynd um umrædda lagabreytingu né hafi nokkur gert athugasemd við notkun hans á lífgildrum undanfarna áratugi.
Sjá einnig: Náttúruverndarstofnun herjaði á Árna Loga eftir viðtal við hann í Mogganum
Föngunin heyrir ekki undir sömu lög
DV lék forvitni á að vita á hvaða lagagrunni Mosfellsbær beitti lífgildrum við föngun minkanna sem sluppu í Mosfellsdal. Skýring fékkst í svari við skriflegri fyrirspurn. Spurt var hvort sótt hafi verið um undanþágu fyrir notktun lífgildra í Mosfellsdal eða hvort ekki hafi verið þörf á því, og þá á hvaða lagagrunni.
Lykilskýringin er sú að föngunin fellur ekki undir lög um vernd og friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, heldur undir lög um búfjárhald. Eldisminkur er skilgreindur sem búfé en ekki villt dýr.
Í svari Hugrúnar Óskar Ólafsdóttur, verkefnisstjóra samskipta hjá Bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar, segir:
„Í því verkefni sem átt hefur sér stað í Mosfellsbæ sl. viku við föngun minka þá telst sú aðgerð endurheimt búfjár, en minkur fellur undir skilgreiningu á búfé samkvæmt lögum um búfjárhald. Nánar tiltekið þá er um að ræða skipulagðar aðgerðir til að handsama búfé (minka) í nágrenni búsins í Mosfellsdal. Þar sem um bústofn er að ræða en ekki villt dýr falla aðgerðir á vegum Mosfellsbæjar því ekki undir veiðar á villtum spendýrum í skilningi laga nr. 64/1994 heldur telst um endurheimt búfjár eins og áður segir.
Allar aðgerðir Mosfellsbæjar í tengslum við handsömun þeirra minka sem sluppu úr búinu hafa verið unnar í samráði við MAST sem hefur ekki gert athugasemdir við að minkar frá loðdýrabúðinu séu handsamaðar í lífgildrur. En vitanlega er gætt að velferð dýranna í samræmi við lög um velferð dýra.“